Gunnar Th.
Fjórða kerfið.....


07.01.2016 17:21

Tvö þúsund og átján.


 Nei, ekki alveg - enn eru tvö ár í 2018. Samt situr þessi tala í mér, ekki sem ártal heldur brot úr gömlum dægurlagatexta þar sem sagði frá óvenjulegu barnaláni fjölskyldu einnar sem hélt áfram að fjölga sér  "uns þau urðu tvö þúsund og átján".  Ég er svo undarlegur til höfuðsins að ég er handviss um að þetta brot ásamt fleirum úr sama texta á eftir að óma í hausnum á mér allt það ár.

Nú er aðeins tvöþúsund og sextán og ætti að vera nægur tími til að losa sig við kvillann - ef það er þá kvilli. Áramótin fóru fram eins og áður var fram komið, þ.e. við Bassi sátum tveir saman í Höfðaborg og horfðum á sjónvarp. Hann horfði samt eiginlega meira á nammiboxið á borðinu. Í Höfðaborg er venjulega til nóg nammi. Við álítum nefnilega að allt sem smakkast vel sé á sinn hátt nammi og af því hér er enginn sem stjórnar eða sér um matarinnkaup fyrir okkur feðga  þá kaupum við bara það sem er gott - semsagt nammi. Ég get upplýst það hér með af því aðeins örfáir lesa þetta og fer fækkandi, að til hátíðanna voru keypt inn fimm kíló af konfekti, fyrir utan 750gr öskjuna sem Óskabarnið gaf. Ég ánafnaði reyndar veislustjóranum okkar þeirri öskju, við Höfðaborgarþrenning höfðum nefnilega veislustjóra sem sá um allar meiriháttar máltíðir um jól og áramót. Það er einmitt sá sami veislustjóri sem er eigandi kínversku jólaseríunnar steindauðu. Hin fimm kílóin höfum við Bassi alveg séð um.

Þegar ég kom heim úr vinnu í gær, á þrettándanum, mátti glöggt sjá gilda sönnun á reglunni sem ég útlistaði þann 21. des. sl. Þótt ekki væri sérlega bjart í lofti var greinileg lengingin á deginum. Þess vegna bendi ég enn á þessa einföldu reglu um dagsbirtu með orðum fengum beint úr þykku bókinni: "...og hafið þetta til marks....".

Þannig er nú það. Fyrir stuttu fullyrti ég að ég ætlaði á mótorhjóli til Færeyja á komandi sumri. Mér eru alveg ljósir annmarkarnir á fullyrðingunni og þess vegna ætla ég að nota Norrönu sem stökkpall því þótt mótorhjól séu orðin þokkalega fullkomin er enn ófært á þeim til Færeyja án þess að annarra farartækja njóti við. Ég fékk óbeinar athugasemdir við framsetningu fréttarinnar varðandi þetta atriði en tek fram að þær voru allar frá lítt þenkjandi fólki og því illa marktæku. Til að taka af allan vafa hef ég nú þegar pantað, greitt og gengið frá farinu með færeysku trillunni Norrönu þann 16. júní n.k. og næst þegar fæti verður stigið á fósturjörðina verður kominn sá 23. Ennfremur er búið að hnýta alla lausa enda varðandi gistingar og ég get upplýst að þær eru ekki af verri endanum. Ég fer ekki einn, eins og líka kom fram og þegar maður gistir með General Bolt-on dugar helst ekkert minna en hótel Hilt-on.

Þetta verður ekki lengri pistill því í mörg horn er að líta þessa dagana. Það er aðeins eitt atriði sem ég vil koma að, til að fyrirbyggja misskilning. Margir halda að áhugi á vélum og tækjum erfist einungis í karllegg. Það þarf ekki að vera rétt eins og meðfylgjandi mynd sýnir. Hún mamma gat eitt og annað.......



31.12.2015 16:43

Um áramót.


Hún lifði ekki lengi, kínverska jólaserían sem ég keypti fyrir mæðgurnar Elínu Huld og Bergrós Höllu, og setti upp á svalahandrið íbúðarinnar í Hraunbænum. Kannski náði hún þremur vikum. Nú er hún dauð, svo steindauð að mér tókst ekki með nokkru móti að koma í hana lífi. Maðurinn í næstu íbúð var með samskonar seríu og þess vegna valdi ég eins - það er gaman að hafa samræmi í hlutunum.

Þarf ég nokkuð að taka það fram að sería mannsins í næstu íbúð er líka dauð? Steindauð!

Hvers vegna í ósköpunum geta Kínverjar ekki smíðað hluti sem endast? Þeir eru alltaf að smíða eitthvað og mér virðist fæst af því duga fyrir næsta horn......

Það eru að koma áramót og í Hraunbæ 30 lýsir ekki á tveimur svalahandriðum - bara af því Kínverjar stóðu sig ekki sem skyldi. Innan við stofugluggann logar hins vegar á 35 ljósa hring sem ég sjálfur - svo það komi skýrt fram - bjó til undir lok síðustu aldar vestur á Ísafirði. Ekkert kínverskt í þeim hring.

Klukkan er að verða fimm á gamlársdegi og úti kveður við stöku hvellur. Mér finnst þessir hvellir óvenju fáir fyrir þessi áramót, venjulega hefur verið sprengt stöðugt frá því sölur opna en mér finnst þetta mun minna núna. Kannski er almennu auraleysi um að kenna, kannski sparnaði. Veðrið hefur allavega verið ágætt fram að þessu en nú er heldur að bæta í vind og öðru hverju éljar.....

Þegar ég var að alast upp vestur á Ísafirði á síðari hluta síðustu aldar (mikið hrikalega finnst mér þetta skemmtilegt orðalag) þá gerðum við guttarnir talsvert af því um hver áramót að sprengja knallara. Mér skilst að hér fyrir sunnan hafi knallarar venjulega verið kallaðir kínverjar.

Þegar hæstu hvellirnir kveða við í kvöld ætla ég að hugsa til seríusmiðanna lánlausu......

Að vanda verðum við Edilon B. áður Eyjólfs- en nú Elínarson Breiðfjörð Thorsteinsson Budenhoff Sandhaug Sóðalöpp tveir heima í Höfðaborg. Við drögum fyrir glugga, leggjumst upp í sófa og horfum á eitthvað uppbyggilegt í sjónvarpinu meðan skothríðin gengur yfir. Bassa er afar illa við hvellina og blossana og þess vegna er heima best.....

Gleðilegt ár allir sem lesa og takk fyrir öll innlitin og álitin á líðandi ári. 


24.12.2015 14:23

Dagur aðfanga.


 Það er aðfangadagur jóla - dagur aðfanga jóla, ef maður snýr orðaröðinni. Það þýðir einfaldlega að í dag er dagurinn sem nýta skal til aðfanga til jólanna. Þá ætti það að vera komið á hreint. 

Ég held gjarnan í gamlar hefðir, t.d. borðaði ég ótæpilega af skötu í gær í bæði mál. Af því ég var á dagvakt í vinnunni lét ég vera að kýla mig út í hádeginu - maður verður jú að vera vinnufær út vaktina, ekki satt? Eftir vaktina fór ég heim í Höfðaborg og sinnti ýmsum verkum eins og vera ber en fór svo aftur í vinnuna og fylgdi kvöldvaktinni í mat - þ.e. þeim örfáu sem borða skötu á þeirri vakt. Þetta eru nefnilega eintómir hérar á "hinni vaktinni" eins og oft vill vera.......Þá var líka vel tekið á því....

.....og af því ég held gjarnan í gamlar hefðir þá notaði ég það sem af er aðfangadegi til að draga aðföng í bú. Þessi aðföng voru aðallega mikið af konfekti og mikið af klementínum í trékössum. Við feðgar í Höfðaborg erum nægjusamir menn (þ.e. þeir okkar sem erum menn, við teljum okkur jú þrjá en einn er gersamlega taumlaus þegar kemur að mataræði. Ég nefni engin nöfn en lesendur mega giska á fótafjölda...) og vegna þess að við erum nægjusamir látum við þessar tvær tegundir duga til jólahátíðar. Það þarf ekki mikið til að gleðja okkur.....

Áður en ég óska gleðilegra jóla ætla ég að setja inn eina mynd sem er reyndar ekki jólamynd heldur táknræn fyrir hugarfarið sem ríkir í Höfðaborg þessa dagana. Þar er verið að byggja skýjaborgir og því er horft upp til skýjanna. Það kemur svo fljótlega í ljós eftir áramótin hvort einhverjar undirstöður finnast undir þessar skýjaborgir:




Þangað til: Gleðileg jól allir sem lesa og gangið hægt um gleðinnar dyr! 

...................................................

21.12.2015 17:08

Jólahjól....


Jútakk, við komumst suður og vel það því klukkan var hálffjögur á miðvikudeginum 16. þegar rennt var í hlað í Höfðaborg og hún var á slaginu fjögur þegar yðar einlægur þeyttist inn um dyrnar hjá Óskabarninu og stimplaði sig inn á kvöldvakt. Vaktinni lauk kl. 24 og þá var satt að segja ákaflega gott að halda heim í borgina og halla sér. Hundur Íslands, sá eðalborni Edilon Bassi Eyjólfs/ og stundum Elínarson Breiðfjörð Thorsteinsson Budenhoff Sandhaug Sóðalöpp var í heimsókn hjá fyrri foreldrum í Hafnarfirði meðan við feðgar dvöldum á Akureyri, því hundar eru venjulega ekki velkomnir í orlofsíbúðir. Hann var sóttur daginn eftir og er dottinn í sína rútínu að nýju. 

Það er einungis sólarhringur í að daginn fari að lengja á ný. Munurinn sést á stuttum tíma og fyrir mörgum árum kom ég mér upp þumalputtareglu hvað birtutímann varðar. Hún er svona: Sé bjart í lofti á þrettándanum er strax farinn að sjást nokkur lenging. Þegar hún Elín Huld  ( kona sem ég þekki...) á afmæli þann sjöunda febrúar nær þokkalegur birtutími allt til kl. 18. Réttum mánuði síðar, þann sjöunda mars, má vel segja að bjart sé orðið kl. átta að morgni. Þá nær dagsbirtan sirka til kl. hálfátta að kvöldi. Tveimur vikum síðar eru svo jafndægur að vori og ekki þarf að útskýra nánar hvað þau þýða. 

Þetta eru semsagt hin einföldu fræði Gunnars Theodórs um dagsbirtu. Við þessi fræði má bæta örlitlu broti - en samt nokkuð mikilvægu. Þegar dagurinn er hvað stystur - semsagt nákvæmlega þessa dagana - er nýtanleg dagsbirta u.þ.b. fjórar klukkustundir. Það skal þó tekið fram að þessi jafna er miðuð við nafla alheimsins, Ísafjörð og má vera að hér syðra gildi einhver skekkjumörk. Mér er bara alveg sama. Þessi viska er þannig til komin að þegar ég var ungur maður vestra og ók um á skellinöðru (slík farartæki voru raunar á þeim tíma kölluð smellitíkur..) af Hondu SS50 gerð, þá varð ég fyrir barðinu á slæmri rafmagnsbilun. 




( Hér má sjá Hondu SS 50, nákvæmlega eins og ég átti en myndin er úr auaf netinu)

Bilunin lýsti sér þannig að framljós hjólsins lýsti aðeins í beygju en slokknaði í beinum akstri. Á Ísafirði og nágrenni eru þónokkuð margir beinir vegarkaflar og þar sem ég gat ekki alltaf haldið stýrinu í beygju bagaði þessi bilun mig verulega. Fyrir ungan mann með brennandi bifhjólaáhuga er það líkast því að missa hönd eða fót að geta ekki (vél) hjólað og þessvegna gjörnýtti ég þann tíma sem slíkt var hægt birtunnar vegna. Síðan er lengd birtutíma í desember brennd í minnið. Á þessum tíma var ég ekki kominn svo langt í vélfræðum að geta lagað svona bilun sjálfur og það var ekki fyrr en um páska 1973, þegar mokað var yfir heiðina til Súgandafjarðar, að ég lagði land undir hjól og ók vestur til Barða frænda. Hann var rafvirki (og er enn) og var aðeins nokkrar mínútur að átta sig á meininu og laga það. Svo fór sumar í hönd og annar vetur en þá var ég með ljós í lagi og skertur dagsbirtutími snerti mig lítið.

Þannig var nú það. Eftir morgundaginn fer daginn semsagt að lengja og lengstur verður hann kringum 21. júní 2016. Vitiði hvar ég ætla að vera þann 21. júní 2016? Nei, það er eðlilegt því það hefur ekki verið upplýst um það fyrr en nú.

Ég ætla að vera í Færeyjum. Algjörlega gjörsamlega svei mér þá!

....og skyldi ég nú ætla gangandi til Færeyja?

Nei. Það er ekki ætlunin. Ég ætla á þessu hér:



Þessi Geiri við hlið bláa hjólsins fer hins vegar hvergi. Ég ætla að teyma með mér annan Geira sem hingað til hefur ekið (eða hjólað) um á perluhvítu pimpbike (ég vona að mér fyrirgefist orðalagið).

Það fer hins vegar enginn óbrjálaður maður með perluhvítt pimpbike til Færeyja, þar sem allra veðra er von. Þess vegna fer ég líka á bláu hjóli en ekki perlurauðu. Og hvað skyldi þá eiga að koma í stað þess perluhvíta?

Þetta hér, sem sótt var í gær:



Þeir hafa ekki margir fengið höfðinglegri gjöf í skóinn frá sjálfum sér og sínum. Þar með sér fyrir endann á fyrsta hluta undirbúnings - tvær bláar Yamaha- systur klárar í hvað sem er. 

Eins og segir í jólalaginu: " Hæ hæ, ég hlakka til........"

15.12.2015 17:42

Horft heim á leið.


Það styttist í dvölinni hér nyrðra, talsvert liðið á þriðjudaginn og við erum farnir að horfa til heimferðar. Mér er illa við að aka lengi í myrkri, sérstaklega ef aðrar skyggnistruflanir eru samfara. Þess vegna leggjum við af stað suður í fyrramálið með morgunroðanum og ættum, ef vel gengur, að ná suður áður en aldimmt er orðið aftur.

Í gær gerðum við góða ferð út með firði, um Ólafsfjörð og til Siglufjarðar. Þegar þangað var komið máttum við til að heimsækja hótelið sem ég birti mynd af um daginn ásamt eikarbátnum Steina Vigg SI.



Það var komið eitthvað fram um hádegi en við vorum svangir og settumst því inn á veitingastað hótelsins, Sunnu restaurant. Pöntuðum okkur dýrindis hamborgara að hætti hússins og þótt verðið væri eðlilega í hærri kantinum var lífsreynslan hverrar krónu virði því húsið er enn smekklegra og látlausara innan en utan. Maður gengur ósjálfrátt um þessi salarkynni með virðingu líkri þeirri sem maður bæri til raunverulega gamals húss. Byggingin öll dregur einhvern veginn fram þessa tilfinningu og kallar sjálfkrafa á þannig hugarfar. Ég veit ekki hvort ég næ að gera mig skiljanlegan en vona það þó....



Eftir málsverð á hótelinu röltum við um bæinn. Það var farið að ýra talsvert úr lofti svo gangan varð kannski ekki eins löng og við hefðum kosið. Náðum þó að mynda eitt það skemmtilegasta á eyrinni - skökku húsin sem eru sérkenni Siglufjarðar. 



( Skökku húsin eru mun fleiri en ég á í vandræðum með myndirnar og þær bíða því betri tíma )


Við tókum eftir að miklar breytingar standa yfir á húsnæði gagnfræðaskólans gamla uppi í brekkunni (ég held allavega að það sé gagnfræðaskólinn) og miðað við breytingarnar ytra erum við nærri vissir um að verið sé að breyta húsinu í hótel. Kannski er það tímanna tákn - börnunum fækkar en ferðamönnum fjölgar.

Ég hafði ætlað mér að heimsækja frænku í Ólafsfirði í bakaleiðinni en það fór á sama veg og í sumar, frænka ekki heima og ég greip í tómt. Nújæja, ég kem aftur næsta sumar...

Við feðgar eyddum síðdeginu hér heima í Furulundi og átum kvöldmat af eigin birgðum. Í gærkvöldi tókum við svo eina jólaseríuskoðunarferð um bæinn og lukum henni með kaffibolla í Eymundsson.

Við áttum tvennt inni fyrir daginn í dag, annarsvegar sund á Grenivík og hins vegar heimsókn í Tæknisafnið. Það kom á daginn að sundlaugin á Grenivík leggst í vetrarhíði og Tæknisafnið er aðeins opið á sama tíma og Mótorhjólasafnið, þ.e. tvo tíma hvern laugardag. Dagurinn hefur því liðið í rólegheitum, hér heima að mestu en eitthvað var þó litið út, m.a. niður á eyrina þar sem helst er von um að rekast á kunnuglega báta. Í allri flórunni rákumst við á tvo kunnuglega. Annar þeirra var þessi: ( Myndin er tekin á Ísafirði fyrir löngu )



Þetta er semsagt hann Jói, sem upphaflega hét Valgerður ÍS og var í eigu Veturliða á Úlfsá. Svo eignaðist Ingi Magnfreðs hann og nefndi Valgerði, þá eigendahópur þeirra Jóns Björnssonar, Rögnvaldar Óskarssonar ofl. og hjá þeim hét báturinn Fúsi. Það nafn bar hann þegar pabbi eignaðist hann, líklega ´92. Pabbi átti bátinn fram til aldamóta en seldi hann þá inn í Súðavík. Nú er hann semsagt kominn norður til Akureyrar og liggur í Sandgerðisbótinni.

Hinn báturinn sem ég fann, Máni, hefur bæði átt góða og slæma daga. Hann var um árabil vestra, fyrst í eigu Jóakims Pálssonar en síðar okkar pabba. Þetta er Shetland 570 með innan/utanborðs Volvo bensínvél. Var upphaflega blæjubátur en vorið 1990 smíðuðum við Kjartan Hauks kafari á hann hús úr áli sem enn er á honum. Ég birti fyrst mynd af Mána með blæjunni og svo með húsinu:








Máni var seldur þegar rauði færeyingurinn Jói var keyptur. Hann var um hríð á Ísafirði en fór þaðan inn í Súðavík. Frá Súðavík til Ólafsfjarðar og þaðan inn á Akureyri. Þegar við feðgar fundum Mána í dag var staðan svona:



Að því ég best veit hefur Máni ekki verið sjósettur í nokkur ár. Ég myndaði hann fyrir nokkrum árum á hafnarsvæðinu og þá var nokkurn veginn sama holning á honum utan hvað önnur framrúðan var þá brotin. Ég er ekki viss um að gamli yrði kátur með Mána sinn núna......

Það er farið að saxast á þriðjudagskvöldið. Við drengurinn toppuðum Akureyrardvölina í kvöld með gala- hamborgara á Greifanum. Þar með hef ég náð að borða á þremur "nýjum" stöðum, þ.e. stöðum sem ég hafði ekki áður komið inn á, Bautanum, Greifanum og Sigló hóteli. Tvær sundlaugar bættust á listann eina og áður kom fram, Glerárlaug og Hríseyjarlaug. Í fyrramálið verður svo íbúðin tekin í gegn, skilað og við leggjum af stað suður á leið.

Nú mega jólin koma........ 

.........................................

13.12.2015 23:23

Eyfirsk blíða!


 Jú, við komumst klakklaust norður, enda hefði annað verið rakinn klaufaskapur í því leiði sem við fengum - einmunablíðu og bjartviðri. Hann hafði raunar orð á því sonurinn að það virtist hált á köflum en eftir að dimma tók sást engin hálka svo það þurfti ekki að slá af hennar vegna. Fljúgandi hálka sést, eðli málsins samkvæmt, ekki í myrkri.

Klukkan var rétt um sex þegar við renndum í hlað hjá Securitas á Akureyri til að fá afhenta lykla að orlofsíbúðinni okkar, sem við raunar höfðum skipti á á síðustu stundu því eins og við var að búast tókst mér að panta einu íbúðina sem ekki hafði þvottavél. Það mátti illa ganga því ég ók beint norður í vinnufötunum með "spari"gallann í farangri og þurfti því á þvotti að halda.

Hér á Akureyri hefur í einu orði sagt verið dýrðlegt veður. Frostið hefur farið niður í væna tveggja stafa tölu en það hefur verið bjart og lygnt. Yfir sjónum hefur legið frostmóða sem gefur umhverfinu sérkennilegan blæ, einkum þegar dimma tekur.

Ég dæli ekki inn meira bulli heldur læt myndir tala.....











Eftir lyklamóttökuna á föstudagskvöld skelltum við okkur í sundlaugina - þessa einu sönnu - en á laugardagsmorguninn ( í gær) heimsóttum við Glerárlaug. Hún var, eins og áður kom fram, ómerkt á listanum en úr því hefur nú verið bætt. Þetta er innilaug með útipottum og þar lágum við lengst af með skrokkinn í plús þrjátíuogátta en hausinn í mínus þrettán!  Síðdeginu var svo eytt í bíltúr um Eyjafjarðarsveitir, heimsókn á mótorhjólasafnið og fleira skemmtilegt. 

Í dag var það svo Hrísey. Við tókum ferjuna út í eyju klukkan hálftvö en sundlaugin var opin frá eitt til fjögur. Við gengum byggðina fyrst enda til enda eða svo gott sem, áður en við lögðumst í pottinn. Á göngunni tókum við nokkrar myndir:









 Þeir eiga fína sundlaug, Hríseyingar, eins og vonandi má sjá á myndunum:





Á glerinu umhverfis heita pottinn voru þessar ótrúlega fallegu frostrósir:








Það passaði að hlaupa uppúr pottinum rúmlega hálffjögur, græja sig af stað og hlaupa niður að höfn því ferjan lagði frá stundvíslega klukkan fjögur. Frá Árskógssandi ókum við út á Dalvík þar sem Haukur S. Valdimarsson skipafræðimaður var heimsóttur. Klukkan var svo um hálfsex þegar við renndum af stað inn til Akureyrar harðákveðnir í að toppa frábæran dag með heimsókn á Bautann. Þangað hafði ég aldrei komið en nú var semsagt úr bætt með hamborgara að hætti hússins. 

Deginum fer að ljúka. Það nálgast miðnætti og sonurinn er farinn út á bílnum að skoða loftsteinadrífur sem mér skilst að gangi yfir landið í nótt og þá næstu. Senn rennur nýr dagur og hann ætlum við að nýta til ferðalags út í Ólafsfjörð, þar sem hluti rótanna liggur. 

Gott í bili.
..................................................

11.12.2015 07:13

Halló Akureyri!

Það er bjartur föstudagsmorgunn í Höfðaborg, klukkan er rétt rúmlega sjö og leiðin liggur til vinnu. Að þessu sinni er vinnudagurinn stuttur því þegar vinnufélagarnir fara í hádegismat fer ég heim, tek mínar töskur ( sonurinn tekur sínar ) og þar með erum við feðgar lagðir af stað til Akureyrar. Þar hyggjumst við eyða nokkrum dögum við að skoða jólaskreytingar og aðra alhliða slökun. Við ætlum t.d. í sund í Hrísey en í þá laug hef ég aldrei farið og hún er því ómerkt á sundlaugalistanum góða. Við ætlum sömuleiðis að heimsækja Glerárlaug, hún hefur alltaf setið á hakanum en fær nú sitt merki í kladdann. Hver veit nema við náum líka mótorhjólasafninu og kannski fleiru?

 

Spáin er góð - og jafnvel betri en góð, miðað við árstíma - og við komum væntanlega endurnærðir suður síðla dags þann 16.

 

Gott í bili, vinnan kallar...

04.12.2015 11:16

Lægðir og hægðir.


Það er sunnudagsmorgunn, sjötti desember og hún Fríða systir á afmæli.  Það er svo sem ekkert stórafmæli, bara svona venjulegt enda er Fríða systir hálfu öðru ári yngri en ég og þar með yngst í hópnum. 

Þau á veðurstofunni eru að spá enn einni lægðinni yfir landið á morgun, mánudag og sú er sögð sýnu mest af öllum þeim sem gengið hafa yfir að undanförnu. Vetrarlægðagangurinn er eitthvað sem ekki kemur á óvart, ég man ekki eftir vetri sem ekki hefur meira og minna einkennst af lægðagangi. Ég man raunar ekki eftir sumri sem ekki hefur einkennst af því sama en það er annað mál. Munurinn er aðallega fólginn í því hvað þessar lægðir bera með sér enda ráðum við litlu um veðrið - við fáum það sent sunnan úr heimi og svo ræður hending því (ásamt nokkrum öðrum samverkandi þáttum) hvaða leið þessar lægðir fara upp með landinu og hvað þær flytja með sér. Mér skilst að þessi lægð allra lægða flytji með sér snjó en þar sem hitastigið á að vera nokkuð yfir núlli gæti sá snjór orðið nokkuð þungur. Umfang hennar mun vera svo mikið að nær til allra landshluta og mér varð sem snöggvast litið vestur á heimaslóðir svona tuttugu ár aftur í tímann.

Í morgun átti ég tal við mann sem átti brýnt erindi austur á firði í síðustu viku. Hann fór vel búinn bæði til vagns og verja enda veitti ekki af. Hans ætlan var að komast aftur suður um helgina en í talinu í morgun kom fram að þar sem hann situr í húsi í litlu þorpi austur á landi er ekki einu sinni fært útúr þorpinu hvað þá milli landshluta. Þannig er sú staða þegar enn ein lægðin er væntanleg og sú af stærri gerðinni.....

Fréttalestur hér í Höfðaborg er annars með dálítið sérstöku sniði. Blöð sé ég nær aldrei og meðfæddur athyglisbrestur leyfir mér ekki að fylgjast með sjónvarpsfréttum nema stutta stund í einu. Veðurspár á ríkissjónvarpinu læt ég þó helst ekki fram hjá mér fara. Að öðru leyti eru mínar fréttir fengnar af miðlum sem enda á .is og þeir miðlar hafa í liðinni viku helst sagt frá veðri og færð. Annað mál hefur þó farið hátt, þ.e. fregnir af ungum manni sem hefur lokað sig inni í glerkassa á almannafæri og hyggst vera þar í viku. Hafi ég skilið rétt er þeirri viku um það bil að ljúka en eitt mest spennandi fréttaefnið við veru þessa unga manns í glerkassanum hefur að mér sýnist verið afurðalosun hans. Netmiðlar - og athugasemdakerfi þeirra - hafa logað af áhuga á málefninu og sýnist þar sitt hverjum. Einhverjar aðrar athafnir mannsins hafa ennfremur vakið athygli, á köflum svo mikla að stjórnendur beinnar útsendingar frá gjörningnum sáu sig knúna til að slökkva um stund á tækjunum, velsæmis vegna að mér skilst. Allur mun þessi gjörningur eiga að vera af listrænum toga og sá er í kassanum situr/liggur margtitlaður myndlistarnemi. Mig langar að efast um listrænt gildi þess sem fram fer en auðvitað er ég aðeins bifvélavirki.....

Frá Hauki á Dalvík bárust þessar myndir:





Þessi fallega fleyta heitir, eins og sjá má, Steini Vigg og ber einkennisstafina SI-110. Steini Vigg er Akureyrarsmíði með gafli eins og nokkrir fleiri, frá árinu 1976 og hét upphaflega Hrönn ÞH-275. Heimahöfnin var Raufarhöfn enda var staðan á Raufarhöfn þá kannski ekki eins og hún er núna. Líklega hefur þó ekki gengið nógu vel á nýjan bát því fimm árum síðar eignast Fiskveiðasjóður hann og selur ári síðar norður til Grímseyjar. Þar verður Hrönn að Þorleifi EA-88. Frá Grímsey fer báturinn aftur " upp á land" og verður Guðrún Jónsdóttir SI-155. Svo færir Guðrún Jónsdóttir sig um tvo firði og verður ÓF-27 en síðan aftur SI-155. 200 ha. VolvóPentan sem upphaflega ýtti bátnum áfram var leyst af eftir nítján ára streð við snurvoðardrátt ofl. Í stað hennar kom önnur VolvóPenta, bólgin og blásin upp í 380 hestöfl. Ekki er þó annað að sjá en sú hafi átt náðugri daga því skv. skipaskrá var síðasta löndun á Guðrúnu Jónsdóttur skráð í júlí 2007. Þá hafði báturinn aðeins þriggja tonna þorskkvóta, eftir því sem best verður séð. Um svipað leyti eignast Selvík ehf. á Sigló bátinn og hann fær nafnið Steini Vigg. Eftir það virðist hann fyrst og fremst ferðaþjónustubátur þótt hann sé áfram skráður með veiðileyfi. Selvík ehf. er skv. heimildum undir sama hatti og Rauðka ehf., þ.e. í eigu Róberts Guðfinnssonar á Sigló og það er því eðlilegt að báturinn liggi við hótelið hans. Það lýtir síst þetta laglega hús að hafa jafn fallega fleytu og Steina Vigg við festar á þröskuldinum. 

(Ég hef raunar átt í skoðanaskiptum við heimamann varðandi þetta hótel en það er annað mál. Mér finnst þetta hús laglegt, látlaust og beinlínis bæjarprýði og er ábyggilega ekki einn um þá skoðun)

Það má vel koma fram undir lokin að annar bátur öllu stærri bar bæði nöfnin Þorleifur EA-88 og Guðrún Jónsdóttir SI-155. Það var Skipavíkursmíðin (1105 ) Jón Helgason ÁR-12 sem gegnum tíðina fór víða og hét mörgum nöfnum en endaði sem Reynir GK og var rifinn á Húsavík 2007.

Það er enn sunnudagur en sigið nokkuð á hann og sólin er að ganga undir. Fyrir augnabliki heyrði ég frá ferðalangnum sem minnst er á hér ofar. Heldur hafði vænkast hans hagur því verið var að ryðja vegi norðan- og austanlands og hann var kominn að Mývatni á suðurleið

Gott í bili.....




29.11.2015 08:54

Til Geira.


 Síðasta helgi var alger andstæða þeirrar yfirstandandi. Nú hafa snjórinn og frostið tekið völdin og leyst af hólmi rigninguna og þokuna sem þá var boðið uppá. Það var hins vegar beinlínis vegna rigningarinnar sem mér datt í hug um síðustu helgi að fara og heimsækja Geira. Geiri býr suður með sjó og það er alltaf gaman að heimsækja hann stutta stund öðru hverju. Hann býr við rysjótt veður en ég hef aldrei heyrt hann kvarta - eðli málsins samkvæmt getur hann það ekki. Hann hefur staðið jafn keikur hvernig sem á hann hefur blásið og hvorki bognað né brotnað undan álaginu, sem óneitanlega hefur á stundum verið gífurlegt, bæði vegna ágangs tvífætlinga og svo vegna náttúruaflanna sem geta verið afar óblíð þarna á Suðurnesjum.

Þegar rignir á snjólausa jörð að vetri má venjulega treysta því að ekki sé hálka. Hálkan er einn versti óvinur vegfarandans að mínu mati og þess vegna fagna ég hverjum hálkulausum vetrardegi. Mér er slétt sama um skammdegismyrkur og allt sem því fylgir, bara ef ekki skapast hálka. Í hálku er fólk að meiða sig, bæði gangandi, hjólandi og akandi......hálkan myndast við frost og því fleiri frostlausir vetrardagar, því minni saltaustur á götur og vegi. Það er líka gott að losna við saltið.

Eins og fyrr sagði rigndi um síðustu helgi og því var tilvalið að leyfa bláa bifhjólinu að sprikla aðeins á sunnudeginum. Ég setti gallann minn og hjálminn í bílinn og tók stefnuna á Sandgerði þar sem bláa hjólið er geymt - reyndar hjá Geira sem þar býr en það er allt önnur ella, eins og sagt er, enda þekkjum við þann Geira miklu betur sem General Bolt-on. Generállinn var mættur í athvarfið sitt og hjólið stóð frítt á gólfinu. Því var snarað út, ég snaraðist í gallann og og augnabliki síðar var athvarfið að baki og búið að setja kúrsinn á Hvalsnes. Það rigndi hóflega og blés mátulega en hitastigið var ekki hátt - það fann ég fljótlega á höndunum sem þrátt fyrir þokkalegar hlífar kólnuðu fljótt. Ég velti fyrir mér hvort það væru ellimörkin sem ég er alltaf að bíða eftir að finna og fann út að ef kaldar hendur væri það eina sem ég þyrfti að hafa áhyggjur af, verandi 58 ára gamall þá þyrfti ég litlu að kvíða. Þegar ég hugsaði "kvíða" var ég kominn suður að Stafnesi......

Það er gaman að aka þessa leið á mótorhjóli. Hún er hæfilega kræklótt til að maður hafi nóg að gera og hæfilega þröng til að halda manni stöðugt einbeittum. Venjulegir fólksbílar eiga erfitt með að mætast á þessum kafla og þegar venjulegur bíll mætir mótorhjóli eiga venjulegir bílstjórar það til að hugsa eitthvað á þann veg að fyrst aðeins sé mótorhjól á veginum megi bíllinn eiga hann allan því hjólið taki svo lítið pláss. Sá sem er á hjólinu veit að gagnvart bíl er hann alltaf minni máttar og verður því að vara sig........

Þennan sunnudagseftirmiðdag voru hins vegar nær engir bílar á ferð. Ein ljós sá ég á eftir mér en þau hurfu niður að Hvalsnesi og voru þar með úr sögunni. Ég ók veginn um Ósabotna neðan flugvallarins, ákaflega skemmtilega leið að fara í góðu veðri og jafnskemmtilega í regni og vindi á mótorhjóli. Hendurnar voru hins vegar farnar að kvarta dálítið enda hanskarnir eini hluti gallans sem var lélegur. Ég huggaði mig við að það er stutt til jóla.

Rétt áður en ég kom inn á veginn sem liggur frá Keflavík (Njarðvík) suður um Hafnir að Reykjanesvita kviknaði rauðgult ljós í mælaborði hjólsins. Á því var mynd af bensíndælu. Ég átti ekki von á þessu enda hafði ég ekki ekið svo mikið frá fyllingu, hélt ég. Ég fyllti hjólið  - fimmtán lítra - þegar ég keypti það og ók svo Nesjavallaleið inn að Hengli og um Hafravatn til baka. Næst ók ég alla leið á Nesjavelli og sömu leið til baka og því næst suður í Sandgerði þar sem tekið var á hús. Ekkert þess á milli og ég fór að velta fyrir mér hvurslags eiginlega eyðslukló þetta hjól væri! Mælaborðið er nefnilega digital - stafrænt - og ég hafði ekki nennt að grufla upp hvernig ætti að "trippa" á því. Rauða skellinaðran er með svona gammeldags hraðamæli og vegmæli með tölum sem rúlla og maður ýtir aðeins á takka til að núlla þær. Það finnst mér góður búnaður, enda gildir hér það sem alltaf gildir og KK gerði svo eftirminnileg skil í laginu um Æðruleysið - "Það einfalda er best"

Ég hafði semsagt enga hugmynd um hversu marga kílómetra ég hafði lagt að baki frá því ég fyllti tankinn á bláa hjólinu og nennti ekki að reikna það út þarna á staðnum. Það skipti líka litlu máli - ljósið hafði talað og eftir því skyldi farið. Ég var nokkuð viss um að ljósið þekkti bensínbirgðirnar betur en ég. Í stað þess að beygja suður í Hafnir beygði ég í átt til Keflavíkur og nam ekki staðar fyrr en við Olísstöðina í Njarðvík. Þar fyllti ég á og þessi fimmtán lítra tankur hafði gleypt tólf komma þrjá lítra þegar yfir flaut. Þar með var ekkert að vanbúnaði og ég hélt af stað aftur upp á Reykjanesbraut og áleiðis suður með Höfnum.

Ég var ekki á leið suður í Hafnir og ók því framhjá. Ég var að fara að hitta Geira og hélt þessvegna áfram móti vaxandi vindi og regni. Leiðin suður Reykjanesið er alveg stórkostleg hjólaleið og eiginlega alveg eins og vegurinn frá Sandgerði að Stafnesi, bugðóttur og mishæðóttur en þó mun breiðari. Á góðum sumardegi kemur breiddin sér vel vegna mikillar túristaumferðar en nú var hvorugt. Það var síð-nóvember og hreint ekki gott veður. Það eina sem var raunverulega gott við þennan dag var hálkuleysið. Jú, og frelsið sem fylgir því að vera einn á hjóli úti í "óbyggðum", eða þannig. Það er ekki alveg hús við hús á leiðinni frá Höfnum suður að Reykjanesvirkjun og þegar túristarnir eru fjarri kemst maður nærri því að eiga heiminn aleinn......

Spottinn frá Reykjanesvirkjun niður að Reykjanesvita er ómalbikaður og í ofanálag bæði holóttur, blautur og forugur. Þetta var kaflinn sem við generállinn slepptum í haust þegar við ókum (eða hjóluðum)  þessa leið á krómhjólunum okkar. Krómhjól myndi aldrei bera þess bætur að vera ekið svona veg fram og til baka. Á bláa hjólinu er hins vegar ekkert króm að finna nema ef vera skyldi í spegli framljóssins. Þess vegna var það látið vaða á holurnar og forina á fullri ferð  - eða já, þeirri ferð sem hæfir slíkri færð - og hvergi slegið af fyrr en á klettabrúninni þar sem land mætir hafi sem nær óslitið alla leið til útlanda......




........og þar var sá eini og sanni Geiri:






Niðri á klöppunum stóð einn lítill bílaleigubíll og tveir túristar fetuðu varlega stíginn upp á  Valahnjúk. Þarna á ysta horni landsins var nefnilega hvorki regnúði né hægur vindur, heldur ósvikið Íslandsveður, hávaðarok og hellirigning. Viðstaðan hjá Geira varð því ekki löng, rétt aðeins myndatakan og svo var haldið af stað til baka með viðkomu við Gunnuhver. Að öðru leyti var ekin sama leið til baka en þótt viðstaðan á bláhorninu væri stutt náði veðrið fram hjá mér og æddi viðstöðulaust upp ilina á stígvélinu (sé tekið mið af lögun landshlutans á korti....). Ég ók - eða hjólaði - alla bakaleiðina í Reykjanesrokinu og rigningunni sem linnti ekki fyrr en við dyr athvarfsins hjá Geira hinum í Sandgerði. Þar var sú leðja af vitaveginum sem ekki skolaðist af í náttúrlegum háþrýstiþvotti heimferðarinnar, þvegin af með garðslöngu og hjólið tekið á hús að nýju.

.....og af þessum pistli má marka að lengd ferðasögu þarf ekki endilega að vera í samræmi við lengd ferðarinnar sem um er fjallað.......

Endum með einni bátamynd frá Hauki á Dalvík:



Þetta er hún Sturla - eða hann Sturla, eftir því hvað menn vilja hafa því Sturla er, muni ég rétt eina karlmannsnafnið sem beygist eins og kvenmannsnafn og er því - "Sturlu" í öllum föllum nema nefnifalli. Til að allt sé rétt þá skrifa ég að myndin sé af Sturlu og sé tekin á Siglufirði - jafnvel þótt ég myndi sjálfur vilja segja " í Siglufirði". Förum ekki nánar út í það, gæti bara misskilist, eins og Kr. Ól. sagði.

Sturla hét upphaflega Senior og var smíðaður í Noregi 1967. Í vélasalinn var sett ellefu hundruð hestafla MAK sem er þar enn en hefur hlaupið dálítið í tímans rás og er nú ekki nema rétt rúm þúsund hestöfl. Upphaflega hefur Senior trúlega verið nótaveiðiskip og keypt þannig hingað til lands árið 1972 en er yfirbyggt 1974. Á sax.is kemur fram dálítið skemmtileg tenging, en þar er skipið sagt smíðað á Karmöy í Noregi. Símon heitinn Olsen, sem var upphafsmaður rækjuveiða vestur við Djúp - og raunar á Íslandi, fari ég rétt með, var Norðmaður, fæddur á Karmöy og gaf bátnum sínum vestra það nafn. Báturinn Karmöy var reyndar líka smíðaður í Noregi, í Fana, sem nú er hluti Bergen. Hann var smíðaður fyrir Gunnar heitinn Friðriksson sem kunnastur er af Vélasölunni og störfum fyrir SVFÍ. Gunnar var þá kornungur maður vestur í Aðalvík. Vél þessa nýja báts bilaði illa í reynslusiglingunni fyrir vestan og í framhaldinu var hann seldur Símoni Olsen sem gaf honum eins og fyrr segir, nafnið Karmöy. Karmöy varð þannig fyrsti rækjuveiðibáturinn á Íslandi. 

Nú er ég hreinlega kominn út á tún! Samt þykir mér ekki ólíklegt að Senior frá Karmöy, seinna Guðmundur frá Íslandi hafi einhvern tíma stundað rækjuveiðar fyrir vestan, þó ég muni það ekki. Mig minnir að hann hafi verið í hópi fjölmargra úthafsrækjuveiðiskipa sem höfðu mislanga viðdvöl á Ísafirði áður fyrr en þori ekki að sverja það. Allt um það fer Guðmundur til Vestmannaeyja 1983 og er þar sem uppsjávarveiðiskip allt til ársins 2004 - með einu grænlensku úthlaupi þó - að Þorbjörn hf. í Grindavík kaupir skipið og breytir því í línuveiðiskip. 

Skipið er yfir 50 metra langt en var upphaflega mun styttra. Það var, ef rétt er með farið, lengt úti í Noregi tveimur árum áður en það var keypt hingað til lands. Á síðu Markúsar Karls Valssonar heitins - eða "HÉR" - má t.d. finna fínar upplýsingar um skipið.

Sturla GK 12 er fallegt skip og hefur gegnum árin alltaf litið vel út, bæði sem Guðmundur og sem Sturla hjá Þorbirni hf. Makkinn er að verða fimmtugur og á eflaust náðugri daga nú á línunni en oft áður. Myndin frá Siglufirði er fín og Haukur fær allar þakkir fyrir hana.

Gott í bili.



................................



 

22.11.2015 09:52

Risastór dagur!


 Það er tuttugasti og annar nóvember í dag og þann dag er alltaf haldið upp á afmæli. Í dag er tilefnið tvöfalt: Afaskottið Emma Karen er tveggja mánaða og eðalhundurinn Edilon Bassi Eyjólfsson (eða Elínarson, eftir því hvernig vindurinn blæs...) Breiðfjörð Thorsteinsson Budenhoff Sandhaug (Sóðalöpp) er hvorki meira né minna en tíu ára í dag!

Fyrir mörgum árum var sagt að hundur sem fengi jafnoft að bragða á kökum, kexi og sælgæti yrði aldrei langlífur. Ekki veit ég við hvað fólk var þá að miða. Kannski einhverja rolluhunda, ég veit það ekki. Hitt veit ég að þrátt fyrir allt óhófið er Bassi jafn fráneygur og fyrr, heyrnin er eins og í hálfsárs hvolpi og hann er sami þindalausi hlauparinn eins og hann var þegar ég fékk hann. Ég hef haldið því fram, án þess að vera neinn sérfræðingur um hunda almennt, að öll þessi miklu hlaup á Bassa hljóti að koma heilsunni til góða. Það er hvergi að sjá nein ellimörk á honum, sama hvernig leitað er. Þetta vita þeir sem hafa umgengist hann nær daglega frá upphafi. Svo hefur Bassi auðvitað verið alinn á gæða - hundafóðri og fátt til sparað í þeim efnum. Allt hefur þetta hjálpað til að halda honum síungum....









Ég ætla ekkert að hafa þetta lengra að sinni. Morguninn fer í að járnsmíða pall undir þrjár þvottavélar í sameiginlegu þvottahúsi blokkarinnar að Hraunbæ 30. Þá geta þær loks farið að þvo þvottinn sinn, mæðgurnar Elín Huld og Bergrós Halla. Að því loknu er ætlunin að skreppa suður í Sandgerði og renna á bláa hjólinu suður að Reykjanessvita - þ.e.a.s. ef leiðin er hálkulaus. 

Síðan verður afmæliskaffi með kökum!

.......................................................................

17.11.2015 08:13

Vika fjörutíu og sjö.


Upp er runnin vika 47 og líður hratt á hana, kominn þriðjudagur. Síðastliðinn laugardag var haldin nafnaveisla afaskottsins sem hingað til hefur aðeins heitið lilla. Foreldrarnir hafa í þeim málum ákveðna sannfæringu og samkvæmt þeirri sannfæringu (sem er jú ákveðin trú, þannig séð...) var þeirri litlu gefið nafn að borgaralegum sið. Eftir athöfnina, sem var hátíðleg eins og slíkar eiga að vera, heitir lilla Emma Karen. Nafnið er í hvoruga ættina sótt, frekar þá til vina ef eitthvað.



Mér skilst nefnilega að Karenarnafnið hafi jafnvel verið löngu ákveðið en Emmunafnið sé afleiðing af miklu áhorfi á þættina um "Friends", en þar mun vera til kríli með því nafni. Svo er ekki að neita hinu að þegar að því kemur að Emma Karen leggi heiminn að fótum sér (eða það sem eftir verður af honum eftir svosem tuttugu ár...) þá er vissulega til bóta að heita jafn alþjóðlegu nafni!

Laugardagurinn var að mestu lagður undir athöfnina og veisluna en kvöldinu eytt í slökun heima í Höfðaborg. Snemma á sunnudagsmorgun réðumst við General Bolt-on í Sandgerði nefnilega í stórleiðangur upp í Melahverfi (Melahverfi er íbúðahverfið rétt við nyrðri Hvalfjarðarvegamótin) með kerru í eftirdragi til að sækja dót. Okkur generálnum finnst alltaf gaman að spá í dót og ekki er verra þegar sá sem á dótið reynist vera fyrrum verkstæðisformaður hjá Vegagerðinni á Ísafirði. Þegar svoleiðis hittingur á sér stað er sest yfir kaffi og meððí og rifjuð upp gömul kynni af mönnum og málefnum, spurt frétta og spáð í fortíð og framtíð. Þetta gerðum við allt saman auk þess að skoða dót sem við - að breyttu eignarhaldi -  höfðum svo á brott með okkur alla leið suður í Sandgerði. Í Sandgerði fengum við aukahendur til að taka dótið af kerrunni og þá var aðeins eftir að koma sér til baka til Höfðaborgar. Að loknum leiðangri var dagurinn eiginlega úti og fundi var slitið. Enn lifði þó nokkuð kvölds og eftir misheppnaðan ísrúnt í Grafarvog ( þar sem varla reyndist almennilegan ís að fá...) var haldið upp í Mosó og málið leyst þar. Á heimleiðinni einsetti ég mér að finna þrjú aðventuljós í gluggum. Um daginn var ég ákveðinn í að finna a.m.k. eitt slíkt og tókst það eftir litla leit. Það er nefnilega alveg merkilegt hvað Íslendingar, sem almennt þekkja þessar sjö ljósa stikur úr gyðingasið sem "aðventuljós", eru gjarnir á að þjófstarta aðventunni með því að setja ljósin út í glugga löngu áður en hún hefst. Ég renndi gegnum örlítinn hluta Grafarvogshverfis og þaðan yfir í Grafarholtið. Ekki tók langan tíma að finna þrjú logandi ljós, auk eins sem var slökkt á. 

Í gærkvöldi þurftum við tveir vinnufélagar að skjótast upp á Hellisheiði til að bjarga biluðum snigli á austurleið. Það tókst von bráðar og snigillinn hélt sína leið til Reyðarfjarðar með aftanívagn og allt. Við gátum hins vegar illa snúið við á heiðinni vegna víravirkis Vegagerðarinnar, en "snilldarverk" þess apparats á heiðinni munu verða talsvert í fréttum í vetur og það verða ekki alltaf góðar fréttir. Þetta er mín spá.......

Allt um það gátum við illa snúið og ákváðum því að aka austur í Hveragerði og snúa þar um hringtorgið á Suðurlandsveginum, einn frægasta flöskuháls svæðisins. Í Hveragerði blasti við a.m.k. eitt full-jólaskreytt einbýlishús með marglitum seríum á girðingu, trjám, þakskeggi og gluggum.

Ég held áfram að birta skipamyndir sem ég fékk sendar frá Dalvík, eins og áður kom fram. Hér er það Daníel SI.152 á Siglufirði:



Daníel SI 152 er löngu hættur að fara á sjó, eins og sjá má á myndinni. Þegar ég kom fyrst til Siglufjarðar eftir langt hlé - það mun hafa verið haustið 2000 - þá man ég ekki betur en Daníel SI hafi verið þarna í slippnum. Hann hét upphaflega Guðmundur Þórðarson, bar einkennisstafina GK 75 og skipaskrárnúmer 482 eins og enn má sjá. Smíðaður í Hafnarfirði 1943 fyrir Garðsmenn, rúm 50 tonn og knúinn 120 ha. Lister. Þrettán árum síðar er sett í hann 280 ha. MWM sem endist fimmtán ár, þá Kelvin-Dorman sem ekki virðist hafa lifað nema árið því skv. skráningu er sett í hann Cumminsvél ári síðar, eða 1972. Ekki kemur fram hvenær þetta stýrishús er sett á bátinn en trúlega er það ekki upprunalegt - 1943 voru menn ekki mikið í að smíða ályfirbyggingar. Daníel SI 152 er líklega búinn að standa þarna í slippnum eitthvað á þriðja áratug og enn er ekkert fararsnið á honum.

Sá næsti er öllu stærri, smíðaður í Þýzkalandi 1959 eftir íslenskri teikningu og einn margra systurskipa. Þetta er Björgúlfur EA 312, smíðaður fyrir Útgerðarfélag Dalvíkinga.



Dalvíkingar fengu tvö samskonar skip, Björgúlf og Björgvin, sem kom ári fyrr. Báðir höfðu samskonar vél, 800 ha. MWM og báðir hafa eflaust átt að geta borið mikið af síld, þótt þeir væru byggðir fyrir síðutog. Báðir voru seldir burt frá Dalvík á svipuðum tíma, Björgúlfur suður til Grindavíkur en Björgvin vestur til Suðureyrar. Saga Björgúlfs í Grindavík varð endaslepp, hálfu öðru ári eftir komu þangað sökk hann undan suðurströndinni, þá undir nafninu Járngerður GK. Skipið var á austurleið með loðnufarm sem ekki var svo stór að hefði átt að valda skaða en talið var að uppstilling í lest hefði gefið sig og farmurinn leitað út í stb. síðuna í mjög slæmu veðri og þungum sjó. Annars var haft á orði um þessa tappatogara að þeir hefðu verið mun burðarminni en ætla mætti af eigin stærð. Það er hins vegar önnur saga.

Um Björgvin EA, sem lifði mun lengra lífi og endaði í brotajárni inn við Skarfaklett í Rvk. sem Árfari SH, ætla ég ekki að hafa mörg orð, utan þau sem ég viðhafði í "kommenti" undir mynd á skipasíðu Þorgeirs Baldurssonar árið 2008:

Var á ferðinni þarna ´93 eða ´94 ( innsk: Í Rifi á Snæfellsnesi) og þá lá Árfarinn svona á fjörukambinum. Mikið fannst mér skelfilegt að sjá skip sem búið var að gera allt þetta við, bæði ný brú og dekkyfirbygging, liggja svona í reiðileysi. Svo fór ég að velta fyrir mér hvaða skip þetta hefði verið áður og það rifjaðist upp að þetta hefði verið Björgvin Már GK. Þar með hvarf söknuðurinn því Björgvin Már var eitt af þessum guðsvoluðu hræjum sem send voru vestur á úthafsrækju forðum þegar það ævintýri var í uppsiglingu. Ég held að botninum í þessum grátlega flota sem "gerður var út" frá Ísafirði hafi verið náð þegar þeir lágu allir bilaðir í höfn, Björgvin Már, Búrfellið og Vatnsnesið (KE) Ég set "gerðir út" í gæsalappir því ég held að þessir bátar hafi legið meira við bryggju en verið á veiðum. Man eftir einu tilfelli þar sem spilöxullinn brotnaði í Björgvin Má. Þá lágu og ryðguðu við bryggju á Patró leifarnar af Jóni Þórðarsyni en í honum var samskonar spil. Það var siglt suðureftir á Björgvini Má með smiðjugengi úr Vélsmiðjunni Þór á Ísafirði, og þeir börðu sig inn úr ryðinu á spilinu í Jóni Þórðar, sem um árabil hafði aðeins verið á línu, til að ná því sundur. Það tókst með harðfylgi og nauðsynlegum varahlutum var náð. Þessarar ferðar var lengi minnst af smiðjumönnum.

Til frekari upplýsingar set ég beina tengingu á pistil Þorgeirs Baldurssonar HÉR.


Þriðja skipið í þessum þætti er Keilir SI 145. Fallegur eikarbátur í góðri hirðu að sjá.


Keilir hét upphaflega Kristbjörg og bar einkennisstafina ÞH-44. Stykkishólmssmíði ( eins og þeir vita sem lesa þykir mér flest gott í Hólminum....) frá 1975, fjörutíu og fimm tonn og knúin 360 ha. Caterpillar. Báturinn var smíðaður fyrir Korra hf. á Húsavík og ekki ótrúlegt að Hafþór Hreiðarsson skipagúrú þar í bæ hafi til hans einhverjar taugar.... sjá HÉR.

 ....og af því talað er um Kristbjörgu ÞH 44 er ekki úr vegi að enda syrpuna á rauðu stálskipi sem ekki hefur alltaf verið rautt. Það var allavega grænt þegar það var forðum á Flateyri og hét Sóley ÍS. Það er hins vegar rautt á myndinni hér að neðan, sem Haukur Valdimarsson á Dalvík sendi mér ásamt öðrum hér að ofan:


 Sóley ÍS var smíðuð í Noregi árið 1966 fyrir Hjallanes hf á Flateyri. Upphaflega með 600 ha. Wichmann sem seinna vék fyrir 870 ha Ölfu. Alfan er enn hjarta skipsins, orðin 33 ára gömul. Það sem er aðallega skemmtilegt við myndirnar tvær frá Hauki - af Keili SI og Röst SK er ekki bara nálægðin, annar á Sauðárkróki og hinn á Siglufirði - heldur það að báðir hafa heitið Kristbjörg og borið einkennið ÞH-44. Sjá HÉR.

Upphaf pistilsins er skrifað á þriðjudegi, eins og fram kemur efst en honum lýkur hér með kl. 15.30 á föstudegi. Tíminn er ekki alltaf mikill til að grúska og skrifa.....

...........................................................................................

08.11.2015 08:39

Sunnudagur áttundi nóvember.



Það líður hratt á nýbyrjaðan mánuð og kominn áttundi dagur af þrjátíu. Í gærkvöldi sá ég fyrstu jólaseríuna í glugga uppi í Hraunbæ og það má búast við því að þeim fjölgi hratt úr þessu því margir vilja stytta skammdegið með jólaljósum. Fram til þessa hefur enginn vetur verið hér á suðvesturhorninu, aðeins rigning og aftur rigning. Rigningin hefur þá augljósu kosti að henni fylgir ekki hálka - hálka veldur slysum bæði á akandi og gangandi vegfarendum og í mínum augum er fátt jafn illa séð og hálka. Sá böggull fylgir þó rigningarskammrifinu að loft er þungbúið og blautt malbik gleypir bílljós. Fyrir vikið er veröldin dekkri og þyngslalegri, skammdegið meira og því grípa margir til jólaljósanna fyrr en ætla mætti. Á sömu forsendum hafa margir tilhneigingu til að láta jólaljósin loga út janúar. 

Mér finnst það bara allt í lagi........

Um daginn nefndi ég óbirtar myndir frá Hauki Valdimarssyni á Dalvík. Nú er gott tækifæri og hér kemur sú fyrsta:



Þetta er, eins og sjá má, Margrét SU 4. Skipaskrárnúmerið er 1153 og miðað við skráninguna hefur Margrét ratað til átthaganna á ný. Hún var smíðuð á Seyðisfirði árið 1971 sem Sæþór SU 175, skráð á Eskifirði og var knúin 125 ha. Perkinsvél. Eitthvað varð til þess að Perkinsvélin vék aðeins fimm ára gömul fyrir dálítið stærri VolvoPentu. Maður hefði haldið að Perkins væri endingarbetri vél en svona Volvo-þeytispjald en menn skipta ekki um vél að gamni sínu og hvergi hef ég séð neina sönnun þess að Perkinsvélin hafi verið sett ný í bátinn. Hins vegar eru dæmi um að menn hafi sett góðar, notaðar vélar í nýja báta. Árið 1971 voru menn lítið farnir að smíða stýrishús úr áli á þessa litlu báta og Sæþór SU 175 fékk ljómandi laglegt stýrishús úr trjáviði. Á mynd í skipaskrá ársins 2008 heitir báturinn Búi EA 100, er gerður út frá Dalvík - heimabæ Hauks Valdimarssonar - og er ljómandi snyrtilegur að sjá. Eftir það hefur báturinn heitið Gói ÞH, Viktor EA og Margrét KÓ. Undir síðastnefndu skráningunni sá ég hann eitt sinn sigla út úr Hafnarfjarðarhöfn og þá var greinilegt að eitthvað meira en lítið hrjáði VolvoPentuna frá 1976 því reykjarkófið var slíkt að vart sást í sjálfan bátinn. Kannski var það líka til bóta að lítið sæist í hann því þá var komið á hann þetta nýmóðins álhús sem satt að segja minnir meira á vitabygginguna á Látrabjargi en stýrishús á laglegum eikarbáti. Líkt og fallegir hjólkoppar geta híft bíldruslu upp í áliti og verðmæti geta lagleg stýrishús gert svipað fyrir báta. Svo getur þetta snúist algerlega við og það finnst mér eiga við um Margréti SU 4. Snyrtileg umgengni og hirða ásamt ryðfríu rekkverki og fleiru smálegu bjarga þó miklu. Við skulum því bara segja að Margrét SU 4 sé flottur bátur og eigandanum til sóma.


(....en af því ég er að nefna "nýmóðins" stýrishús þá má ég til með að nefna Þorkel Björn NK, sem raunar leit sitt skapadægur suður í Þorlákshöfn ekki alls fyrir löngu, og svo "Dísirnar" tvær sem lengi voru í Bolungarvík, þær Sædísi og Bryndísi. Á Þorkel Björn, sem var laglegasti bátur áður var settur einhver allra ljótasti kofi sem ég hef séð á bát í langan tíma og svo var skitið yfir skömmina með enn ljótari hvalbak. Báðar Dísirnar fengu í áranna rás ný stýrishús en meðan húsið á Bryndísi var bara þokkalega laglegt og fór bátnum ágætlega var húsið á Sædísi hreinlega hryllilega ljótt. Sædís er nú, eins og menn vita safngripur á Ísafirði og hefur fengið stýrishús sem er eftirmynd þess upphaflega en Bryndísi sá ég síðast húslausa uppi á Hlíðarenda ofan Akureyrar og þar áður niðri í slipp. Af tillitssemi við aðstandendur sleppi ég því svo viljandi að minnast á Fram ÞH.62 ) 

Hér kemur svo líka mynd af Frosta ÞH. 229. Hann var smíðaður árið 2001 í Kína fyrir Bjössa Jóakims úr Hnífsdal og hét þá Björn RE. Síðan eignaðist þyrlu-Mangi skipið og gerði út sem Smáey VE 144. Nú er það semsagt komið norður til Grenivíkur og heitir Frosti.



Ég þekki lítið til þessa skips og enn minna til annars Grenivíkurskips, Varðar ÞH. Mér er ómögulegt að muna hvort skipið ég sá vestur á Ísafirði fyrir örfáum árum. Það var að leggja frá Sundahöfninni eftir löndun, þurfti að taka snúning á gönguhraða og ég man að ég hugsaði um það hvort einhvern tíma væri elduð súpa þar um borð, svo svakalega lagðist skipið í lítilli beygju á engri ferð. Það hélt svo áfram að rúlla eins og tunna út eftir Sundunum.....

Þriðja skipið í þessarri myndasyrpu H.V. er Blængur NK. Eins og kunnugt er er þetta gamli Freri og þar áður Ingólfur Arnarson. Skipið var smíðað 1973 á Spáni fyrir B.Ú.R. og er lifandi sönnun þess að Spánverjar smíða betri skip en bíla:



Ögurvík átti þetta skip frá 1985 og lagði í það mikla peninga fyrir fimmtán árum eða svo. Þá var það lengt, hækkað og MANíunum tveimur skipt út fyrir eina Wärtsilä uppá 5000 hestöfl. Maður hélt að Freri væri orðinn hálfónýtur af viðhaldsleysi eftir að þrengja fór að hjá Ögurvík. Ekki virðist það þó vera því varla færi Síldarvinnslan að draga ónýtt skip á sjó með tilheyrandi kostnaði og það er seigt í þessum þúsund tonna Spánverjum. Þótt rúm fjörutíu skrokkár séu u.þ.b. tvöfaldur líftími margra nýsköpunartogaranna þá eru eins og fyrr segir "ekki nema" fimmtán ár á aðalvél og eflaust mörgu fleiru sem skipt var um um sama leyti. Allt um það, skipið er flott og skilar vonandi sínu.

Hér syðra rignir með köflum og hitinn er þrjár til fimm gráður eftir því á hvaða mæli er litið. Pistillinn er skrifaður í tveimur hlutum og milli þeirra skaust ég á bláa bifhjólinu suður í Sandgerði þar sem það mun hafa hávetrardvöl. Það rigndi hressilega á leiðinni en góður hlífðarfatnaður skýldi gegn allri bleytu. Ég átti svo víst bílfar í bæinn aftur og það var notalegt að koma í hús í Höfðaborg.

Gott í bili.
....................................................................................................

02.11.2015 08:36

Mánaðamót.


Mánaðamót hér í Höfðaborg teljast alla jafna ekki merkileg tímamót og nýliðin mót voru ákaflega hefðbundin. Maður þarf jú að gera það sama og aðrir, borga reikninga í heimabankanum, fletta yfir síðu á skipamyndadagatalinu frá honum Hafþóri á Húsavík og kannski einhver smáatriði til viðbótar. Að öðru leyti gengur lífið sinn vanagang og hér heima eru laugardagar og sunnudagar líka vinnudagar svo lengi sem einhver verkefni liggja fyrir. Yfirleitt er enginn hörgull á þeim.......

Veðrið á laugardaginn var hins vegar með slíkum eindæmum að ekki varð unað innandyra við verk heldur kallaði sólskinið og lognið mann bókstaflega út fyrir dyrnar og togaði áfram út fyrir bæjarmörkin. Heiðurshundurinn Edilon Bassi, sem yfirleitt er fastur ferðafélagi þegar land er lagt undir hjól var í þetta sinn skilinn eftir heima því farartækið rúmar ekki ferfætling. Eins og áður var fram komið er rauða skellinaðran lögst í vetrarhíði - og m.a.s. dreifð um stórt svæði - en bláa bifhjólið fær ekki sína vetrarhvíld strax. Laugardagurinn var tilvalinn hjóladagur enda sáust nokkur slík á ferðinni strax um morguninn. Það var þó ekki fyrr en nokkuð var liðið á daginn að því bláa var beitt á bikið og haldið af stað upp á Suðurlandsveg, inná Hafravatnsafleggjarann og þaðan áfram Nesjavallaveginn. Sólin var eilítið farin að síga enda er viðveran á himinhvolfinu stutt á þessum árstíma, og þótt fallegir geislarnir væru kærkomin tilbreyting frá gráma liðinna vikna var ylurinn frá þeim hálf máttleysislegur. Nesjavallavegurinn hafði náð að þorna þar sem hann liggur yfir Mosfellsheiðarflákana en strax og upp í hæðir og dalverpi Hengilsins kom var vegurinn rakur og kuldinn niðri við jörð myndaði varasaman glerung á stöku stað. Ofan við Nesjavallavirkjun er stórt útsýnissvæði með trépalli. Við gatnamót þessa svæðis stoppaði ég og myndaði með símanum út yfir Þingvallavatn meðan ég fylgdist með vegmóðum hjólreiðamanni klífa brekkurnar í svo lágum gír að fæturnir gengu eins og vængir á flugu.......



Gufustrókurinn frá Nesjavöllum gefur góða hugmynd um vindafarið:



Sólin hafði ekki náð að skína á þetta svæði nema örstutt um hádaginn og þegar hún seig niður fyrir hátinda Hengilsins og gaf sig alla í Mosfellsheiðina tók kuldinn aftur völdin við Nesjavelli. Vegurinn niður brekkurnar var því verulega sleipur á köflum og það sem helst varð þessum hjólreiðakappa til hjálpar á uppleiðinni var að malbikið þarna er frekar gróft. Á mótorhjóli varð ekki farið nema fetið niður og þegar þangað kom var vegurinn lítið skárri - rakur og farin að myndast á honum frostskán. Það var því ekki farið lengra en að Nesjavöllum, þótt vilji hafi staðið til að aka upp með vatninu vestanverðu og Mosfellsheiðina undir Skálafelli heim. Kuldinn beit dálítið í hnén, ég hefði mátt vera betur búinn til fótanna. Auk þess hefði ég ekið vestan vatns í skugga og hálkuhættu og þegar ég hefði komið upp á Mosfellsheiði hefði sólin verið sest. Besti kosturinn var því að aka sömu leið til baka. Ég náði brekkuklifraranum á reiðhjólinu norðan til í Hengilsdölum og þegar ég kom vestur fyrir dalina inná heiðarflákann mætti ég öðrum hjólamanni sem var á leið til Nesjavalla. Sá hefur vonandi verið á negldu!

(Hér verður eiginlega að koma fram, þeim til skýringar sem ekki eru staðkunnugir að allur heiðarflákinn milli Mosfellsdals og Hengils er á mínum kortum nefndur Mosfellsheiði. Heiðin rennur norður að Þingvallavatni og suður að Sandskeiði / Lækjarbotnum. Þess vegna liggja bæði Þingvallaleiðin um Mosfellsdal (upp hjá Gljúfrasteini) og Nesjavallaleiðin um Mosfellsheiði, þótt talsvert landsvæði liggi milli veganna)

Það var örlítið farið að bregða birtu þegar ég renndi í hlað í Höfðaborg, tók hjólið á hús og kom mér inn í ylinn.......

Veðurblíðan undanfarna daga hefur eflaust létt mörgum verkin. Kvöldvaktirnar í vinnunni hafa alla jafna verið frekar rólegar, nýttar til viðhaldsverka og annars sem fyrir liggur en síður til stórátaka nema mikið liggi við. Á mánudagskvöld þurfti að stíga út úr þægindarammanum þegar annar hjólakraninn á Sundahöfninni bilaði. Kranarnir eru tveir, því þegar Eimskip á Reyðarfirði fékk nýjan krana í sumar var sá gamli fluttur til Reykjavíkur þar sem hann skyldi þjóna meðan stóri brautarkraninn, Jakinn, fengi stórviðgerð. Allt hefur það gengið eftir stórslysalaust og meðan Jakinn hefur staðið úti í horni hafa hjólakranarnir tveir runnið fram og aftur eftir höfninni án þess að þurfa að beygja. Nú er Jakinn aftur kominn í gagnið og Reyðfirðingurinn "Jarlinn" út á ytri hafnarendann í biðstöðu. Þar með er aftur kominn upp sú staða að sá hjólakraninn sem "á heima" á Sundahöfninni, Jötunn er hann nefndur, þarf öðru hverju að krækja út fyrir Jakann. Jakinn er margfalt afkastameiri en hjólakranarnir og er því aðalkraninn við losun og lestun skipa. Hann rennur fram og aftur á beinu spori en Jötunn vinnur svo þeim megin við hann sem henta þykir. Þessum tilfærslum Jötuns, sem er trúlega kringum fjögur hundruð tonn að þyngd með öllu, fylgja gríðarleg átök og síðdegis á mánudag þegar verið var að krækja fyrir Jakann  brotnaði einn af vökvatjökkunum sem beygja ferlíkinu.  Á hvorri hlið eru sjö hjólapör og á hverju pari er beygjubúnaður. Allt er þetta í yfirstærð og það tók okkur allt kvöldið fram yfir miðnætti að skipta um búnaðinn. Trúlega hefur hátt í helmingur tímans farið í að ná tilheyrandi hjólapari af og setja á aftur. Í gærkvöldi voru svo aftur brettar upp ermar þegar skipt var um öll fjögur framhjól stóra bómulyftarans í Hafnarfirði. Hafnfirðingarnir fengu "nýjan" bómulyftara á dögunum og sá sem fyrir var var sendur vestur á Ísafjörð. Þangað fórum við svo tveir félagar til að setja hann saman og á það er minnst hér neðar. Hafnfirðingarnir fengu "nýja" lyftarann hins vegar á ónýtum dekkjum þar sem ný voru ekki komin til landsins. Nú í gærkvöldi var allt orðið klárt til skiptanna og ákveðið að nota þessa einmuna veðurblíðu til verksins. Það tók fjóra menn alls fimm klukkustundir að skipta um öll fjögur framdekkin og var hvergi slakað á nema rétt til að gleypa í sig pizzur í kvöldmat!

Það er víðar fjör en í Eyjum.........



........................................................................................................................................

27.10.2015 21:44

En það bar til um þessar mundir.....



 Nei, þetta er ekki jólaguðspjallið! Það bar hins vegar til (eða við....) um þessar mundir - nánar tiltekið í dag - að söngtrippið Bergrós Halla fyllti tuttugu æviár. Þetta er árviss viðburður - þ.e. að BH fylli enn eitt árið en tvítug hefur hún aldrei orðið áður. Þess vegna er þetta mikill merkisviðburður. Eldri systirin og nýbakaða mamman Áróra varð tuttuguogfimm þann áttunda ágúst sl. og aldarfjórðungsins var minnst hér á síðunni. Sonurinn, frumburðurinn hefur hins vegar ekki átt neitt merkisafmæli í tvö ár eða svo, allt frá því hann varð þrítugur. Hann er svona svolítið eins og Pétur Pan, eldist lítið eða ekkert og ætlar að hafa það þannig ævina út. Þess vegna ræðum við ekki aldur  - við tveir ræðum helst ekki leiðinlega hluti!

Auðvitað eru öll afmæli merkisafmæli, svona þannig séð. Þau verða hins vegar sýnu merkilegri eftir því sem þeim fjölgar og líkurnar á einu afmæli í viðbót minnka. Þess vegna hef ég, allar götur frá fimmtugu, einsett mér að halda á einhvern hátt upp á öll mín afmæli sem eftir eru - nokkuð sem ég hefði fyrir þau tímamót talið óhugsandi.

Ég ætla ekki að fabúlera frekar um afmæli. Þegar ég var að leita í gömlum skrifum að jafngömlum afmælispistlum BH, þá datt ég niður á pistil sem ég hélt að væri löngu glataður. Hann var á sínum tíma skrifaður til minningar um mína fyrstu trillu og settur á sérstaka síðu þar um. Svo bilaði eitthvað í kerfinu og seinni helmingur pistilsins tapaðist. Mér þótti þetta afar leitt því mikil vinna lá að baki skrifunum, en fékk ekki að gert. Nú brá hins vegar svo við að ég fann pistilinn heilan og óklipptan meðal tíu ára gamals efnis. Þess vegna ætla ég að birta hann núna, þótt talsvert bíði af góðu efni, m.a. prýðilegar myndir frá Hauki Valdimarssyni á Dalvík.

Það er þriðjudagskvöld, tuttugasti og sjöundi október. Úti er rigning og rúmlega sex gráðu hiti. Við Edilon Bassi erum tveir einir í Höfðaborg því sonurinn skrapp í bíó. Hjá okkur er hlýtt og notalegt og að vanda lifir á nokkrum kertum.

Hér fer á eftir þessi tíu ára gamli pistill um fyrstu trilluna. Sú sem minnst er á nokkrum orðum neðanmáls er sú sama og nú heitir Stakkanes og þeir þekkja sem lesa: 

............................................................................................................

Frá 23. 09. 05.

Upphaf útgerðar.

Það var sumarið ´78. Seint um veturinn hafði ég hraðfryst á mér hálsinn með því að aka mótorhjólinu á öðru hundraðinu illa klæddur í tíu stiga gaddi. Árangurinn var margra vikna vinnutap og þrautaganga milli sérfræðinga í Reykjavík. Það lá á borðinu að ég yrði að skipta um hobbý. Mótorhjólið yrði að víkja og eitthvað rólegra að koma í staðinn. Ég auglýsti hjólið og maður hringdi að sunnan. Hjólið var nær nýtt, og eitt það fallegasta á landinu sinnar gerðar svo eftir nokkru var að slægjast. Það varð úr að hann kæmi með flugi til að líta á gripinn. Hann féll með skelli, kaupin voru gerð, hjólið var sett í skip og maðurinn flaug suður. Eftir stóð ég með fullar hendur fjár.

Ég hafði ákveðið að láta gamlan draum rætast og fá mér trillu. Var m.a.s. búinn að finna bátinn. Hann stóð upp við húsgafl úti í Hnífsdal. Lítil, frambyggð gafltrilla, gullfalleg að mér fannst. Konni Gísla átti bátinn, hafði keypt hann frá Patró árið áður og flutt heim með vörubíl. Konni var svo sem til í að selja, sagðist hafa augastað á stærri bát. Við sömdum um 350 þúsund kall og í kaupbæti fékk ég sögu. Sagan var á þá leið að þremur árum áður hefði drykkfelldur húsasmiður þar vestra hafist handa að hausti við að smíða bát. Framan af vetri gekk verkið vel en þegar á leið fór drykkjan og afleiðingar hennar að hafa slæm áhrif á línur bátsins. Þar kom undir vor, þegar báturinn var nær fullgerður, að vínþurrð alvarleg háði verklokum. Fór svo að smiðurinn seldi bátinn fyrir eina vínflösku. (hér ber að árétta að þetta er sú saga sem fylgdi bátnum í kaupbæti. Um sannleiksgildið veit ég ekki, en þó hefur mér nú á síðari árum borist til eyrna rómur sem frekar styður söguna, en hitt)

Kaupandinn mun hafa lokið smíðinni og sett vél í bátinn. Vélin var þó ekki hefdbundin trilluvél heldur bílvél með fjögurra gíra kassa, drifskafti og tilheyrandi. Skrúfubúnaður var þó hefðbundinn; tveggja blaða skiptiskrúfa með skiptigrind og gríðarstóru handbremsuhandfangi úr vörubíl til að breyta skurði skrúfunnar. Eitthvað munu eiginleikar bátsins hafa vafist fyrir mönnum vestra og því varð minna úr notkun en skyldi. Þegar svo Konni Gísla keypti bátinn hafði vélin verið tekin úr en gírkassinn og drifskaftið fylgdu, auk nokkurs búnaðar tilheyrandi kælingu vélarinnar.

Ég var á þessum tíma að vinna við vörubílaakstur hjá Hraðfrystihúsinu hf. í Hnífsdal og því voru hæg heimatökin með flutning bátsins. Ég snaraði honum á pall og flutti inn til Ísafjarðar. Kom bátnum fyrir á hafnarsvæðinu nærri Vélsmiðju Ísafjarðar. Þar hafði ég unnið nokkru áður og átti innangengt hjá Braga og Friðgeiri, sem báðir höfðu nokkuð gaman af trillubrasinu.

Ég varð mér úti um vél. Raunar þurft ég að kaupa heilan Skóda Oktavíu, en notaði aðeins vélina og gaf restina. Ég hafði töluverða reynslu af bílabrasi en litla af trillum. Það hentaði mér því ágætlega að hafa bílvél í bátnum, og von bráðar var vélin komin á sinn stað. Hún var raunar frekar erfið í gang, en brennandi áhuginn ýtti öllum slíkum smávandræðum afturfyrir. Talsverð handavinna var óunnin í bátnum, t.d. vantaði handföng á þak stýrishússins, ekkert gler var í gluggum og engir pollar voru fyrir landfestar. Þetta smíðaði ég allt í vélsmiðjunni, og er ekki frá því að menn hafi glott eilítið yfir suðulistinni minni, sem á þessum tíma var frekar vanþróuð. En eljan yfirsté allar slíkar hindranir og ég var ákveðinn í að vera sjálfbjarga, enginn skyldi þurfa að hjálpa mér með neitt.

Allar raflagnir vann ég sjálfur, startbúnað, hleðslukerfi og annað sem til þurfti.

Engin siglingaljós voru á fleytunni, svo ég smíðaði mastur ofan á stýrishúsið og kom fyrir ljósum í því. Þetta var fyrsta smíðin sem ég fékk hrós fyrir, frá vegfaranda sem oft átti leið hjá og gaf verkinu auga. Báturinn hafði að sönnu verið dálítið kollóttur svona masturslaus en eins og oft þarf lítið til að breyta miklu, þá gjörbreyttist allt yfirbragð trillunnar við þessa viðbót.

Svo kom að sjósetningu. Ég kom bátnum fyrir á stóru vörubretti og hengdi aftan í frystihússvörubílinn. Við hlið lóðsbryggjunnar var dálítil vör, hentug fyrir sjósetningar og niður í hana fór báturinn. Svo var beðið flóðs. Uppúr kvöldmat var fullfallið að og ég mætti á staðinn ásamt einhverjum af kunningjunum, sem ætluðu að vitna stóratburðinn - ég var jú að sjósetja minn fyrsta vélbát. Böndin voru losuð af, félagarnir ýttu á stefnið og ég tók mér stöðu við bóginn bakborðsmeginn, hafði í hendi mér bandhönk festa við rekkverk, tilbúinn að stökkva upp á hvalbakinn við hlið stýrishússins. Báturinn rann niður vörina, skuturinn nam við sjó, síðan nam við sjó, og hún flaut! Á sekúndubroti þaut yfirspenntur útgerðarmaðurinn upp á hvalbakinn, og greip í handfangið á þaki stýrishússins. Það var á því augnabliki sem ég áttaði mig á tvennu: Lakkmálningin á hvalbaknum var flughál í bleytu og skýringin á hinni stuttu notkun bátsins vestra varð ljós. Við þungann skall báturinn á hliðina og meðan sjórinn fossaði yfir borðstokkinn þeyttist ég beint í hafið undir hlátrasköllum þeirra sem á horfðu.

Ég hafði ekki sleppt takinu á handfanginu og þar sem brún stýrishússins nam nánast við sjó velti ég mér innfyrir borðstokkinn. Báturinn rétti sig aftur, en hafði tekið inn allnokkurn sjó. Ég hristi af mér bleytuna og bjóst til að gangsetja. Þá kom næsta áfall: vélin fékkst ekki með nokkru móti í gang. Startaði mjög þungt og stirðlega og vildi alls ekki þýðast eiganda sinn. Það var ókátur útgerðarmaður sem henti bandi í land og bað um að verða dreginn að bryggju. Það var ekki annað að gera en binda fast og fara heim í fataskipti.

Næstu kvöld var reynt að koma vélinni í gang. Ég hafði sett nýjan, stóran rafgeymi í bátinn, og prófaði nokkra til viðbótar en ekkert gekk. Ég yfirfór allar lagnir og tengingar en alltaf var sama sagan - vélin startaði hægt og þungt, engan veginn nógu hratt til að fara í gang. Þetta var sama vandamálið og hafði verið í prófunum uppi á landi, en þá hafði hún þó farið í gang og gengið ágætlega. Ég glímdi við þetta vandamál nokkur kvöld eftir vinnu. Svo leið að helgi. Eftir að hafa eytt öllum laugardeginum í baráttu við vélina tók ég ákvörðun. Burt skyldi vélin með haus og hala! Ég skrúfaði af henni startara og rafal, ásamt blöndung og einhverju fleiru smálegu og dró þvínæst bátinn undir löndunarkrana. Sló kaðli á vélina, hífði hana aftur úr húsinu, yfir borðstokkinn og skar á bandið!

Ekki jókst stöðugleikinn við þetta, og það var með hálfum huga sem ég fleytti rambandi trillunni yfir höfnina að smábátabryggjunni. Næstu dagar fóru í að finna aðra vél. Það tókst eftir nokkuð þóf og ég undirbjó mig fyrir ísetningu. Nýja vélin var hífð í með löndunarkrananum, fest og tengd og þar sem ég hafði fengið hana "strípaða" var það sem af fyrri vél hafði komið sett utan á þá nýju. Svo var komið að gangsetningu. Með nýhlaðinn rafgeymi og allt kerfið margyfirfarið enda til enda snéri ég lyklinum titrandi af spenningi. Ekkert gerðist! Vélin hagaði sér nákvæmlega eins og sú sem lá á hafsbotni. Ég fékk á tilfinninguna að ég hefði gert mig að fífli.

Heimsótti Kristján Lyngmó, sem hafði selt mér seinni vélina.Hann var gamall vélarefur, hafði marga fjöruna sopið í þeim efnum. Ég rakti raunir mínar fyrir honum og fékk niðurstöðu um hæl: "Það er bilaður hjá þér startarinn, vinur, Það eru ónýtar í honum fóðringarnar og líklega kolin líka. Ég á hér einn í lagi úti í skúr sem þú mátt eiga"

Þetta var í fyrsta skipti síðan ég keypti bátinn, sem ég sótti mér ráð til annarra. Sjálfsálitið hafði sett hroðalega niður því auðvitað átti ég að vita þetta. Þarna hafði reynsluleysið talað, ég átti að hafa þekkingu til að segja mér þetta sjálfur. Mér leið verulega illa. Ég hafði hent heilli vél, líklega betri en þeirri síðari og í þokkabót eytt mörgum lognkyrrum kvöldum í óþarfa viðgerðarbrölt, þegar tímanum hefði verið betur varið í siglingar.

Ég þáði startarann með þökkum. Fór niður í bát, skipti um startara og startaði í gang! Vandræðalaust, létt og eðlilega. Vélin malaði eins og köttur, og ég leysti frá bryggju.

Eins og áður hefur mátt skilja, var vélin fram í stýrishúsi. Þar var einnig stýrishjólið og öll stjórnun á vél, gír og skrúfu. Þar sem venjulegur Skódagírkassi var við vélina hafði ég úr fjórum gírum áfram að velja, og síðan einn afturábak. Þá var báturinn búinn skiptiskrúfu, sem flækti stjórnunina allverulega. Það fór drjúg stund í að átta sig á því hvaða stilling hentaði best, og eftir töluverðar prófanir þarna utan við bryggjuna fann ég út að með gírkassann í þriðja gír og skrúfuna á u.þ.b. treikvartskurði áfram skilaði vélin mestu, vann léttast og báturinn gekk best. Sá galli var hins vegar á, að skrúfan skar mjög lítið á annan veginn og í þessarri stöðu var það afturábakstillingin. Báturinn bakkaði því afar illa. Ef þörf var á að bakka rösklega var best að skipta gírkassanum í bakkgír, og stilla síðan skrúfuna á fullan skurð áfram. Þannig mátti með góðri inngjöf bakka svo hratt að sjórinn féll innyfir gaflinn!

Þegar ég loks gat litið upp frá gír- og skrúfuskiptilærdómnum, gaf ég mér tíma til að velta bátnum dálítið fyrir mér. Með þvi að standa í miðju hans og stíga síðan aðeins meira í annan fótinn gat ég hallað bátnum töluvert. Hann var svo kvikur að við minnstu hreyfingu mína lagðist hann bókstaflega á lista. Ég ímyndaði mér að orsökin væri sú að báturinn væri afar léttur, og með létta vél. Þegar ég svo kom aftur að bryggju, alsæll með árangurinn, beið þar maður sem hafði fylgst með æfingunum úr fjarlægð. "Þetta er hættulegur bátur" sagði maðurinn og hristi hausinn. "Hann er síðulaus. Það eru engar viðtökur í skrokknum aftan við hús. Það má mikið vera ef ekki verður slys á þessum bát" sagði hann svo um leið og hann hristi höfuðið og gekk burt.

Ég sat eftir, hugsandi. Auðvitað var þetta rétt hjá manninum. Ég hafði bara ekki litið þannig á málin í allri ánægjuvímunni yfir að vera orðinn bátseigandi. Skrokkurinn var -V- laga, ekki -U- laga eins og vænlegra hefði verið. Vegna léttleikans var því tiltölulega lítill hluti bátsins niðri í sjónum. Skrokkurinn var auk þess svo einkennilega byggður, eins og maðurinn hafði réttilega bent á, að hann var belgmestur um stýrishúsið. Þar sat einnig vélin, og þar var þ.a.l. mesta þungdin. Aftan við húsið var hann ákaflega rýr og burðarlítill.

Við þessu var svo sem ekkert að gera. Vélin virkaði, báturinn sigldi og það var það sem máli skipti, fannst mér.

Ég ákvað að gefa bátnum nafn og halda skírnarveislu. Ég átti kærustu á þessum tíma (sem raunar er sambýliskona í dag) og báturinn skyldi bera seinna nafn hennar - Huld - .Ég málaði nafnið framan á stýrishúsið á laugardegi. Síðan var farið á ball í Hnífsdal og skyldi það vera hluti skírnarveislunnar. Eftir ball bauð útgerðarmaðurinn/skipstjórinn til siglingar út á Prestabugtina utan við bæinn. Aðeins þrír þáðu boðið; ég sjálfur, kærastan og ungur ofurhugi sem ekki kallaði allt ömmu sína og vildi gjarnan prófa þessa stórhættulegu fleytu, sem svo var sögð. Kampavínið var til taks og skírnarathöfnin skyldi fara fram á bryggjunni en þegar til átti að taka tímdum við ekki kampavíninu á stefnið og mölvuðum því kókflösku fyllta með sjó! Eftir skírnarræðuna, sem ég flutti sjálfur, voru landfestar leystar og látið úr höfn. Þegar við komum út úr höfninni voru öll fimmtíu hestöflin leyst úr læðingi og trillan bókstaflega flaug áfram á spegilsléttum haffletinum. Nóttin var björt, lognið var algert. Það var vart hægt að hugsa sér betra veður fyrir skírnarsiglingu.

Við sáum stóran bát í fjarska, á innleið. Sigldum út á móti honum. Þegar við mættumst var trillunni snúið við og siglt samsíða inn undir bæinn. Báturinn var Sigurvon ÍS 500 frá Suðureyri, um 200 tonna skip. Ég uppgötvaði mér til mikillar ánægju að trillan gat gengið meira en Sigurvonin enda hlutfallið hestafl pr. tonn okkur öllu hagstæðara. Við sigldum fram fyrir Sigurvonina og dálítið út frá henni. Ég hafði nefnilega tekið eftir því að hún ruddi talsverðu á undan sér og myndaði því stórar öldur. Ég beið átekta þar til skipið var komið framhjá og setti síðan á fulla ferð áfram, þvert á siglingaleiðina.

Trillan mætti fyrstu öldunni og tók dýfu. Lyftist síðan hátt upp, sveif fram af öldutoppnum og stakk sér. Það kom ægilegt högg á skrokkinn. Stefnið fór á kaf uppundir glugga, mastrið brotnaði af, kampavínsflaskan hrundi niður í kjöl og brotnaði, vélin drap á sér og við féllum hvert um annað þvert í eina kös niður í bátinn. Meðan á þessu stóð tók báturinn þriðju ölduna með djúpri veltu. Síðan lægði sjóinn.

Þeir á Sigurvoninni virtust ekki hafa tekið eftir neinu. Sigldu áfram áleiðis í höfn, og við fórum að bjástra við vélina, hálfvönkuð eftir byltuna, auk þess að vera jú talsvert rykuð í höfðinu af skemmtan næturinnar. Vélin hafði kastast svo til á púðunum að raflögnin hafði slitnað af henni. Ég snéri saman einhverja víra, nóg til að geta gangsett, og við sigldum á dólinu inn í höfn, rifin, marin og aum, með kampavín í kjalsoginu og mastrið dinglandi í raflögnunum utan á stýrishúsinu. Bundum bátinn við bryggju og höltruðum heim á leið.

Daginn eftir var ég stoppaður af lögreglunni og spurður hvort ég hefði verið úti á sundum á bát um nóttina að fíflast kringum Sigurvonina. (Guðna Einars skipstjóra hafði þá ekki litist á blikuna, eftir allt saman!) -Nei, ekki hafði það verið ég, enda báturinn bilaður og ónothæfur þessa stundina. Ég sá að þeir trúðu mér ekki, en ætluðu þó auðsjáanleg ekkert að gera í málinu. Glottu aðeins og báðu mig endilega fara varlega á þessarri veltikollu. Ég lofaði því.

Ég lagaði það sem aflaga hafði farið, og síðan var hvert tækifæri nýtt til að skreppa með sjóstöng eða handfæri út með hlíðunum beggja vegna fjarðar. Í bestu veðrum kom jafnvel fyrir að siglt væri nokkuð út á Djúpið eða út með Óshlíð. Þar brást nær aldrei fiskur, og náðist oft reytingsafli. Sigling á trillu út með Óshlíð, jafnvel þó vel gangi, getur tekið 20-30 mínútur, jafnvel meira sé vindur og sjór á móti. Það var eftir eina slíka veiðiferð sem fór að kula út úr Skutulsfirðinum og ég ákvað að snúa heimleiðis. Til að njóta skjóls og hita hélt ég mig í stýrishúsinu á siglingunni í stað þess að gera að aflanum eins og vaninn var. Vindurinn jókst og innundir Hnífsdalsbryggjunni var orðið verulega hvasst. Í vindi útúr firðinum er vanalega sjólítið, enda skjól af landinu, svo ekki var teljandi ágjöf. Ég keyrði vélina með nokkuð meira afli en vanalega, og bætti heldur í þegar ég sá bát nálgast úr Jökulfjörðum. Ég mátti til með að reyna bátinn gagnvart þeim sem þar var á ferð. Eftir drykklanga stund á fullri ferð og ríflega það fór ég að finna einkennilega lykt. Þar sem ég var svo sem orðinn ýmsu vanur kippti ég mér ekkert upp við það en hélt áfram að fylgjast með aðvífandi bát sem fljótlega fór fram úr mér. Ekkert var þó slegið af því ég hafði hug á að hitta þá sem þar voru á ferð, þegar heim kæmi. Lyktin jókst, og ég tók eftir, þar sem örlítið var tekið að bregða birtu, að pústgrein vélarinnar var farin að glóa af álaginu. Þar þóttist ég finna skýringuna á lyktinni, þó mér fyndist að eitthvað væri sem ekki passaði alveg. Eftir nokkra stund varð ég var við reyk í kringum mig og skynjaði á sama augnabliki hvað það var sem ekki passaði: lyktin sem ég fann og var nú orðin verulega megn, var ekki af heitu járni, heldur logandi viði. Ég kveikti samstundis á perunni, sló af vél og stökk aftur úr stýrishúsinu. Á því var tvöföld vængjahurð sem opnaðist út, sem betur fór, því öll bakhlið stýrishússins stjórnborðsmegin stóð í björtu báli! Ég teygði mig í fötu í skutnum, fyllti hana af sjó og skvetti á þilið. Eldurinn slokknaði strax, ég settist niður með hjartslátt og bölvaði sjálfum mér fyrir bjánaganginn. Sem fyrr sagði var báturinn með bílvél en ekki hefðbundna bátavél. Þ.a.l. var púströrið ekki kælt, eins og í langflestum trilluvélum, heldur aðeins lagt á sama hátt og í bíl, frá vélinni aftur með henni, út í gegnum gafl stýrishússins og þaðan beint upp fyrir þakbrún. Meðan ég hafði skemmt mér yfir glóandi pústgreininni hafði rörið aftar, sem hafði jú roðnað "aðeins", kveikt í þilinu þar sem það lá í gegn. Þar sem þetta gerðist fyrir aftan mig og ég var með allan hugann við það sem ég sá út um gluggana hafði ég ekki tekið eftir neinu - nema lyktinni! Sem betur fer urðu litlar skemmdir á bátnum en það var kapteinn með sótsvart stýrishús og sviðið stolt, sem lagði að bryggju það kvöldið.

Á þessum tíma bjó Robbi Færeyingur á Ísafirði. Í símaskránni var hann nefndur Róbert Róbertsson stýrimaður, en fyrir okkur strákunum var hann semsagt Robbi Færeyingur. Robbi var líklega um þrítugt, fjölskyldumaður og starfaði við sjómennsku. Hann var gæddur þeim eiginleikum að kunna og geta allt sem snerti fiskveiðar og sjómennsku- sama hvar borið var niður. Það var a.m.k. hans trú, og engin ástæða til að rengja hann. Robbi átti einhverntíma leið um bryggjuna þegar ég var að brasa í trillunni. Hann leit yfir útgerðina og kvað uppúr með að hér vantaði eitt og annað ef vel ætti að vera. Hann kvaðst þess albúinn að segja mér, landkrabbanum, til um allt sem að fiskveiðum léti, og í sameiningu gætum við breytt þessarri nábyttu í fínt veiðiskip. Ég lét nú kannski lítið yfir, vildi enda eiga mína útgerð í friði þó kannski mætti hlera mál manna, væri eitthvað það rætt sem ég teldi mig geta lært af. En Robbi var áhugasamur í meira lagi svo ég ákvað að bjóða honum í smá sjóferð út á sundin. Hann hafði reyndar verið úti að ganga með barn í kerru en leysti það vandamál með því að kippa barninu með. Ég leysti frá og lét úr höfn. Robbi tók sér sæti á þóftu og lét barnið sitja við hlið sér. Ég sigldi í rólegheitum út í sundin og dólaði þar stóran hring meðan Robbi ræddi í miklum ham um væntanlega stórútgerð, sem hann augljóslega taldi sig strax orðinn hluthafa í. Það sem hins vegar fór í gegnum huga minn var hvernig ég gæti sem best losnað ur þessarri klípu án þess að vera ókurteis. Púkinn kom upp í mér, og um leið vék öll skynsemi til hliðar. Ég samdi hernaðaráætlun. Sneri bátnum til baka áleiðis til hafnar, og gaf fulla ferð, "Helvíti gengur hún", hrópaði Robbi gegnum hávaðann. Ég skemmti mér. Þegar við beygðum fyrir brimvarnargarðinn hallaðist báturinn talsvert að vanda, og Robbi kallaði: "helvíti er hún kvik!" "Þetta er nú ekkert" galaði ég á móti úr stýrishúsinu. "Sjáðu þetta" Um leið svipti ég stýrinu í gagnstæða átt, þverlagði bátinn í hálfhring og keyrði á fullri ferð og fullri beygju í eigin öldur. Nú gerðust hlutirnir hratt. Trillan hentist gjörsamlega á hliðina, svo sjórinn féll óheft inn aftan við stýrishús. Robbi greip dauðahaldi í barnið annarri hendi og náði í borðstokkinn sem upp snéri með hinni. Sjálfur datt ég á hausinn og missti stýrið, en náði að koma undir mig löppunum, slá aðeins af og leggja stýrið í borð á hinn veginn. Borðstokkurinn kom uppúr sjó og báturinn rétti sig. Robbi var fölur en sagði ekkert. Ég dólaði að bryggju og lagði að. Robbi tók barnið orðalaust og klifraði upp á bryggju. Þegar hann hafði fast undir fótum fékk hann málið: "Ég held þú ættir að brenna þennan manndrápsbolla sem fyrst áður en þú drepur einhvern á þessu. Um borð í þetta fer ég aldrei aftur!"

Herbragðið hafði heppnast. Raunar svo vel að ég var sjálfur skíthræddur. Ég sá eftir fíflaganginum og nagaði mig í handarbökin fyrir að hafa ekki tekið tillit til barnsins. Ég átti sjálfur nokkur ár í að verða pabbi og skildi kannski ekki hugsanaganginn. Barnið var nánast eins og bangsi fyrir mér. Svo var hitt á að líta, að ég hafði reynt eitt og annað í fiflagangi á bátnum, en þessi viðbrögð voru mér ný, og fram að þessu hafði það verið mín bjargföst trú að hann gæti farið flatur en myndi aldrei ná að súpa inn á sig sjó. Þetta atvik undirstrikaði reynsluleysi mitt og varð mér lærdómsríkt.

Einhverju seinna kom ég niður á bryggju. Þar stóð þá hópur manna á spjalli, meðal þeirra var Torfi Einars, lögregluþjónn. Hann var (og er) skútuáhugamaður mikill og átti þarna bát. Um leið og ég geng niður á bryggjuna bendir Torfi á trilluna og segir: "Átt þú þetta helvíti?" Mér var misboðið, en kvað þó já við. "Það á einhver eftir að drepa sig á þessu", sagði Torfi. "Ég steig á borðstokkinn á henni áðan og var nærri kominn í sjóinn. Þetta er eitthvað það valtasta helvíti sem ég hef séð!"

Ég reyndi að finna eitthvað svar, en það sem mér kom fyrst í hug þorði ég ekki að láta flakka - ekki við lögregluþjóninn. ("Hvern andskotann varstu að stíga á MINN bát?"). Mér fannst betra að leiða háðsbylgjuna sem skall á mér frá hópnum hjá mér, þóttist skoða landfestarnar, leit yfir bátinn og labbaði svo burt. Á leið upp landganginn skall á bakinu á mér " Það er alltof fallegt nafn á þessum helvítis hlandkoppi. Hann ætti frekar að heita Háski" (gríðarlegur margradda hlátur) Ég þekkti rödd Torfa. Fokreiður lét ég mig hverfa inn í bíl og ók burt. Ég hafði verið niðurlægður, báturinn minn hafði verið niðurlægður. Á þessu augnabliki var eineltið fundið upp! Í ofanálag höfðu einhverjir skúrkar uppdiktað nýtt ónefni á bátinn. Þessu meinlega uppnefni var svo skellt á mig hvar sem ég fór. Í tilefni skrokklagsins höfðu þessar illu tungur gefið fleytunni nafnið "Kviðpokaseiðið!"

Svo hjöðnuðu bylgjurnar. Það var nefnilega tilfellið að Torfi var ágætis náungi, ákaflega vel liðinn sem lögga, og hæfilega strangur við okkur guttana sem kannski höguðum okkur ekki alveg eftir bókinni. Okkur var þokkalega til vina og þeir voru ekki margir sem lögðu illt til Torfa. Mér þótti óráð að fylla þann flokk, vildi frekar eiga hann með en móti.

 

Það er orða sannast að skjótt skipast veður í lofti. Það leið að hausti, aðeins lifðu nokkrir dagar af ágúst. Kærastan var löngu farin sinn veg og ég hafði málað yfir nafnið. Hafði náð mér í aðra, að sunnan, sem því miður var á heimleið eftir sumarvinnu vestra og skyldi setjast á skólabekk. Ég sat undir stýri í frystihússvörubíl og landaði togarafiski, meiraprófsmenntaskóladroppát sem hafði fundist það eins og viðundur innan um allt unga fólkið sem mætti haustið´73 í Menntaskólann á Ísafirði, uppfullt af speki lífsins og ákaflega meðvitað um eigið pólitískt mikilvægi. Eftir þann vetur var ég ákveðinn í að frekari skólaganga nyti ekki forgangs fram yfir brauðstrit blandað áhugamálum. Í bílútvarpinu malaði miðdegissagan og það leið að þrjúfréttum. Á undan þeim komu hefðbundnar auglýsingar. Útsölur, skólavörur, skólafatnaður - "Enn eru nokkur sæti laus í grunndeild málmiðna við Iðnskólann í Reykjavík. Umsóknarfrestur rennur út eftir þrjá daga". Hækkað í útvarpinu, bætt við hraðann og ég var kominn með fiskinn út í Hnífsdal á augabragði. Meðan lyftaramennirnir tóku af bílnum hljóp ég inn í símann og hringdi. Fimm mínútum síðar var ég innritaður í grunndeild málmiðna í Reykjavík. Ég! Sem aldrei ætlaði suður!

Lauk vinnudeginum, gekk strax um kvöldið í að hnýta lausa enda. Húsnæði, fæði um veturinn, skotsilfur. Já, skotsilfur! Ég átti ekki krónu. En ég átti bíl og ég átti trilluna. Og vissi um mann á Ísafirði sem hafði sýnt henni áhuga. Ég hringdi í hann. Daginn eftir átti ég skotsilfur til a.m.k. hluta vetrar. En engan bát.

 

Veturinn ´78 - ´79 var langur og erfiður, andvirði trillunnar entist framyfir jól. Eftir það blankheit og aftur blankheit. Ég vissi af trillunni uppi á kambi vestra, og vissi líka að nýr eigandi hafði engan sóma sýnt henni. Hún hafði verið á floti lengi vetrar, hálffull af vatni og snjó. Síðar tekin upp á kamb og eitthvert spýtnadrasl neglt yfir hana til "varnar". Um vorið var svo komið að ég varð að selja bílinn til að geta lifað síðustu vikurnar og til að hafa efni á heimferðinni. Fyrir bílinn fékk ég einhverja aura, en afganginn í víxlum. Þegar heim kom fór ég beint í frystihúsið aftur, og á vörubílinn. Ég átti oft leið fram hjá trillunni þar sem hún stóð umkomulaus og í vanhirðu uppi á kambi. Næst þegar ég hitti eigandann bauð ég honum víxlana í skiptum fyrir bátinn. Hann samþykkti. Ég hafði eignast trilluna mína í annað sinn!

 

Báturinn hafði verið tekinn á land innst í firðinum, í ágætri fjöru en langt frá allri aðstöðu, s.s.rafmagni. Ég fékk því lánaðan kranabíl hjá frystihúsinu, tók bátinn á bílpallinn og flutti útí bæ, þar sem smábátakarlar höfðu viðhaldsaðstöðu. Þar gat ég dundað við að lagfæra það sem betur mátti horfa eftir tæplega ár í annars eigu. Það var málað, það var snyrt. Vélin yfirfarin og hreinsuð og stýrisbúnaður endurnýjaður. Svo kom að sjósetningu. Ég hafði ákveðið, eftir nokkrar vangaveltur, að prófa mig áfram með ballest í bátinn, þó mér væri verulega illa við að þyngja hann. Eitthvað varð þó að gera, og eftir sjósetningu vigtaði ég sand í nokkra poka og raðaði í botninn. Mér reiknaðist til að ég þyrfti 300 kg. af ballest ef vel ætti að vera. Sandinn gat ég ekki notað til annars en að prófa, vegna fyrirferðar. Mér var bent á að skipasmíðastöðin ætti nokkur bretti af hrájárnsklumpum, sem myndu hentugir í þetta. Ég fór og leit á járnið og leist vel á. Klumparnir voru u.þ.b. 25x25 cm, og um 8cm þykkir. Ég talaði við velviljaðan mann, sem vigtaði einn klump, og sagði mér hversu marga ég þyrfti í 300 kg. Síðan lá leiðin til framkvæmdastjórans til að borga. Það lagðist ekki vel í mig. Maðurinn var nágranni foreldra minna, ég kannaðist við hann og þótti hann leiðinlegur. Hann brást ekki væntingum. Þegar ég hafði kynnt honum málið og gefið upp magnið reiknaði hann út verð sem var sirka tvöfalt það sem ég hafði -af svartsýni þó- ímyndað mér. Ég spurði hvort þetta væri rétt. Hann horfði á mig, pírði augun en svaraði ekki. Ég sagði honum að ég hefði engan veginn efni á þessu, sem var dagsatt. Ég yrði því að sætta mig við helftina. Hann helmingaði upphæðina með fýlusvip, og ég sleit þessa þúsundkalla beint út úr hjartanu í mér. Ég náði mér í kerru, taldi saman 150 kg í klumpum og hélt til skips. Á leiðinni hugsaði ég mitt ráð. Mér hafði þótt verðið tvöfalt sanngirnisverð. Mig langaði að ná mér niðri á manninum fyrir fýluna og viðmótið, og það að geta ekki séð aumur á fátækum útgerðarmanni með nokkra hrájárnsklumpa. Ég fann lausnina, og þegar aðrir voru að ganga til náða renndi ég með kerruna niður að skipasmíðastöð og náði í þann hluta sem mér fannst mér bera með réttu.

Með 300kg af hrájárni í kilinum snardatt gangur bátsins niður. Nú var ekki lengur um að ræða "flug", heldur gekk hún svona þokkalegan trillugang, um 7-8 mílur. Mesta breytingin var þó á stöðugleikanum. Báturinn varð hin mesta sjóborg, tók raunar kannski fullmikið framanyfir í öldu, en það var ekkert sem orð var á gerandi. Menn á bryggjunni urðu varir við breytinguna og einstaka kinkaði kolli í viðurkenningarskyni. Það þótti mér gott. Vegna mikillar vinnu sumarið ´79 var báturinn þó minna notaður en ætlunin var.Það sannaðist svo um haustið,máltækið gamla: "Illur fengur, illa forgengur". Þegar ég tók bátinn á land um mánaðamót sept.-okt. þá dró ég hann upp í fjöru á hálfföllnu. Til að létta hann tók ég upp helming klumpanna og lagði í fjöruna við hlið bátsins. Þegar ég kom svo morguninn eftir til að sækja járnið var það horfið - hver einasti klumpur úr fjörunni. Aðeins var eftir sá hluti sem í bátnum var. Kannski var það líka sá hluti sem ég hafði borgað fyrir.

 

Að hausti settist ég í Iðnskólann vestra og lauk þar um áramót undirbúningi fyrir nám í bifvélavirkjun. Í ársbyrjun ´80 hóf ég svo störf hjá Vélsm. Þór hf.- bíladeild-, á verknámssamningi. Sumarið ´80 var afar annasamt, mikið að gera á verkstæðinu og enn meira í vélsmiðjunni. Það var lítill tími til að sinna bátnum, en þó var hann eitthvað notaður á sjóstöng, aðallega út með Óshlíð og við Básana Arnardalsmegin. Að hausti var vetrarbúið á vanalegan hátt, nema nú tók ég bátinn upp á plan við bílaverkstæðið og geymdi hann þar undir segli.

Sumarið ´81 var að öllu leyti svipað, nema hvað gamla kærastan birtist aftur á þröskuldinum, og báturinn fékk því sitt gamla nafn að nýju. Þegar leið að hausti og trillan hafði sáralítið verið notuð um sumarið, kom enn upp sú staða að þessi kærasta skyldi líka í skóla syðra. Eins og í fyrra tilvikinu ákvað ég að fara með henni. Nú var hins vegar allt betur undirbúið. Ég réði mig á verkstæði í Reykjavík, og fékk námssamninginn yfirfærðan fyrir liðlegheit Gests Halldórssonar forstjóra og eiganda. Þegar skóli skyldi hefjast fluttum við bílinn okkar suður með skipi, fylltan fátæklegri búslóð. Trillan var tekin á land og gengið frá henni á plani verkstæðisins eins og veturinn áður. Þegar ég bað verkstjóra verkstæðisins að hafa auga með henni spurði hann hvort mig vantaði ekki aura til fararinnar og vetrarins. Ég gat ekki neitað því. Hann spurði hvort ég vildi ekki bara selja sér bátinn. Eftir nokkra umhugsun féllst ég á það. Ég vissi bátinn í góðum höndum, var boðið gott verð og þegar við héldum suður var ég þónokkrum aurum ríkari - en trillu fátækari. Ég hafði selt bátinn minn í annað sinn!

 

Veturinn syðra kom og fór. Hann bar með sér miklar sviptingar, ég keypti fyrstu íbúðina mína, að Hverfisgötu 55 í Rvk. og trillupeningarnir komu í góðar þarfir. Í fyrsta sinn á ævinni þurfti ég að standsetja íbúð, færa og breyta innréttingum, leggja gólfefni ofl. ásamt því að kynnast nábýli við sérlundaða meðeigendur, dreng sem látlaust spilaði á rafmagnsgítar, daginn inn og út, án þess að taka nokkrum framförum, og því sem verra var, fyllibyttur og hávaðaseggi. Við náðum að búa þrjá mánuði í íbúðinni áður en skóla kærustunnar (hér eftir nefnd sambýliskona) lauk og við héldum, eins og löngu var ákveðið, vestur aftur. Íbúðina leigðum við skyldfólki en fengum inni í sumarbústað Járniðnaðarmannafélagsins í "Skóginum" heima. Ég fór aftur að vinna hjá Þór hf. upp í námssamninginn minn. Trillunni vissi ég af inni í Súðavík þar sem hún var orðin sameign verkstjórans og bifvélavirkja í Súðavík. Hún var sumarið´82 í miklum breytingum og lagfæringum, m.a. var skipt um vél. Fljótlega eftir að vestur kom keyptum við karl faðir minn 14 feta hálfplanandi spænskan plastbát úr Bolungavík. Hann var knúinn 25ha. utanborðsmótor, og var ákaflega góð fleyta í alla staði. Á honum fór ég mína fyrstu ferð norður í Jökulfirði, og líklega var það eina ferðin sem eitthvað kvað að þetta sumar, fyrir utan vanalegar sjóstangarferðir, því sumarið bókstaflega hvarf í vinnu. Allt í einu var komið haust, plastbáturinn kominn upp á land í vetrarhíði og konan farin suður til að ljúka síðasta vetri í námi. Ég varð eftir á Ísafirði til að ljúka mínu námi með sveinsprófi. Þegar snjóa leysti á Ísafirði vorið ´83 var ég orðinn bifvélavirki, og konan á leið vestur,orðin leikskólakennari, eða fóstra, eins og það hét þá. Þau komu raunar tvö vestur, því konan bar í sér frumburðinn sem kom svo í heiminn 10 dögum síðar. Þar sem ekki var útlit fyrir að tími yrði fyrir útgerðarbrölt þetta sumarið heldur var plastbáturinn seldur. Ég lét mér duga að heilsa upp á karlana á bryggjunni og horfa út á Djúpið á lognkyrrum sumarkvöldum.

Það var liðið talsvert á ágústmánuð þegar pabbi minn birtist eitt kvöldið og veifaði lyklakippu. "Ég var að kaupa bát". Bara svona! Enginn fyrirvari, hafði boðist skip hjá manni sem var að flytja burtu,og keypti á staðnum! Skipið? Jú, 24 feta FJORD, norsk snekkja með öllum búnaði, eldunaraðstöðu, ísskáp, salernisklefa, aukasvefnkáetu undir stýrishúsi og átta strokka FORD bensínvél með hældrifi. Þvílíkt verkfæri! Daginn eftir var tekinn prufuhringur út á Prestabugtina og það voru ólýsanleg umskipti frá Skódabílvél og 25ha utanborðsmótor að hafa tvöhundruð hestafla sleggju undir fótunum. 26 sjómílur var ganghraðinn og okkur fannst við svífa! Þarna var allt til alls, fljótandi sumarbústaður. Þessir bátar voru ekki mjög algengir úti á landi á þessum tíma, og við vorum bókstaflega að rifna af stolti.

Þar sem fljótlega fór að hausta var snekkjan tekin á land uppúr miðjum september og vetrarbúin. Vorið ´84, þegar menn fóru að huga að bátum sínum og setja á flot var eigandinn - pabbi - hins vegar búinn að setja saman langan lista yfir allt sem hann vildi lagfæra áður en sjósett yrði. Það var strax sýnt að með því móti yrði báturinn ekki tilbúinn á sjó fyrr en síðsumars. En eigandanum lá svo sem ekkert á.

Mér þótti illa horfa með sumarið og orðaði það á verkstæðinu. Verkstjórinn kom til mín og spurði hvort ekki stæði til að sjósetja snekkjuna. Ég kvað ekkert útlit fyrir það. "Vilt´ekki kaupa bát?" sagði hann og glotti. "Þú getur fengið trilluna þína aftur ef þú vilt. Það er alltaf eitthvað helvítis basl á vélinni. Þú mátt reyna núna" Trillan hafði nú um skeið verið geymd á svæði vélsmiðjunnar og ég vissi af einhverjum raunum með nýju vélina. Mér var skemmt. Þarna bauðst mér að kaupa bátinn minn í þriðja sinn, nú allverulega endurbættan. Ég fór og ræddi við bankastjórann. Daginn eftir átti ég bát. Bátinn minn. Enn einu sinni.

 

Nú fór í hönd tími mikilla vangaveltna og yfirlegu. Þannig var að verkstjórinn og meðeigandi hans höfðu tekið olíuverkið úr vélinni til að leita að bilun en þar sem langt var um liðið hafði týnst mikilvægt stykki úr vélinni. Þar sem þeir félagar vissu frekar lítið um uppruna vélarinnar fór ég að afla mér allra þeirra upplýsinga fáanlegar voru. Þá varð mér til happs að til okkar kom lyftaraviðgerðarmaður Norðurtangans hf. Hann leit á vélina og kvað uppúr með að þessi vél, sem bar nafnið VOLVO PENTA væri hreint engin Volvo, og því útilokað að Volvoumboðið kynni á henni nokkur skil. Þetta væri Mercedes-Benz vél sem Volvo hefði keypt og "marinerað" (breytt í bátavél). Hann sagði þessa vél vera algenga í Steinbock lyfturum og ég skyldi leita til Steinbock-þjónustunnar í Rvk. vegna hlutarins sem vantaði.

Ég þáði ráðið og hringdi. Þar leystust málin farsællega, ég fékk góðar upplýsingar hjá hjálplegum mönnum sem m.a. fólu í sér að vélin væri 48 hestöfl, og ætti að vera ákaflega gangviss og þýð. Einnig fékk ég notað stykki sent í böggli án reiknings eða kröfu! Með upplýsingarnar við hendina lagði ég til atlögu við vélina. Hún fór í gang og malaði létt. Verkstjórinn og fyrrum eigandi leit yfir verkið, hlustaði á gang vélarinnar og hristi höfuðið. Hafði orð á því að þeir sameigendur hefðu hreinlega aldrei gefið sér tíma til að finna hvað raunverulega var að.

Ég sjósetti bátinn og fór prufuhringinn, spenntur yfir að finna hvernig báturinn væri með þessari stóru dieselvél. Skemmst er frá að segja að þessi búnaður hafði yfirburði gagnvart gömlu Skódavélinni. Vélin var auk þess sett niður aftan við stýrishúsið í stað þess að vera inni í því eins og áður var. Þar með var stýrishúsið orðið raunveruleg vistarvera, í stað vélarskýlis. Vegna þyngdar vélarinnar þurfti mjög litla ballest og stöðugleikinn var góður.

Þetta sumar, ´84 var báturinn allnokkuð notaður. Oftast var ég einn, en þó kom fyrir að kunningjar slæddust með. Það var á mánudagskvöldi, einu af þessum lognkyrru sumarkvöldum vestra, að ég bauð félaga mínum á sjóstöng út að Arnarnesi. Við lögðum af stað upp úr kl. 19 og þegar endum hafði verið sleppt var sett á fullt út og við settumst fram í hús. Á útleiðinni var spjallað , báturinn malaði og tilveran var tímalaus. Allt þar til komið var út á móts við Básana, klettarana í fjörunni við utanverða Kirkjubólshlíð. Í miðri setningu þagnaði félaginn, stapaði niður fæti og sagði svo: "Hvaða helvítis vatn er á gólfinu?" Ég leit niður og sá að plittarnir voru við það að fljóta upp! Ég vissi um leið að þar sem báturinn var mikið reistur á siglingu og vatn var komið alla leið fram í lúkar, hlaut að vera mikið afturí. Húsið var gluggalaust að aftanverðu svo ég opnaði hurðirnar. Báturinn var hálfur af sjó! Gírinn var kominn á kaf og vélin farin að ausa upp með reimskífunum! Ein handdæla var í bátnum og í hana var strax gripið auk vatnsfötu, og ausið upp á líf og dauða. Enginn björgunarbátur, engin björgunarvesti. Ég setti á fulla ferð áleiðis í land. Við sáum sjóinn hækka í bátnum, þrátt fyrir austurinn. Það var tvísýnt hvort við næðum landi. Báturinn var að fyllast af sjó, og lekinn virtist aukast með ferðinni. Við vorum vissir um að hann sykki áður en fjörunni yrði náð, við vorum tilbúnir að synda síðasta spölinn. Hugsunin náði þó svo langt að ég vildi ekki láta bátinn sökkva með vél í gangi, vildi ekki láta hana eyðileggjast. Vissi að auðvelt yrði að ná bátnum upp, svo nálægt landi, væri það gert strax. Ég teygði mig fram í hús og drap á vélinni. Báturinn rann þyngslalega síðustu metrana upp í stórgrýtta fjöruna og stöðvaðist við stóran stein, 5-6 metra frá fjöruborðinu. Við vorum við það að stökkva í sjóinn með kaðal þegar félagi minn sagði: "Það er hætt að hækka í !" Við athuguðum málið og sáum engan sjó koma upp þar sem áður hafði verið hálfgert gos upp með gírnum á vélinni. Við tókum aftur til við að ausa og dæla og strax lækkaði yfirborðið umtalsvert. Allt lauslegt var á floti í bátnum, og meðal þess rak ég augun í korktappa sem ég hafði ekki séð fyrr. Það læddist að mér ljótur grunur. Sá sem sett hafði vélina í bátinn hafði einhverntíma nefnt við mig tappa undir gírnum sem þyrfti að passa. Gírinn væri sumsé sjókældur, sjódælan á vélinni dældi sjónum upp um botnstykkið, gegnum vatnskælana og að síðustu gegnum gírinn og út. Tappinn væri til að tæma sjókælikerfið. Ekki hefði verið til réttur tappi svo hann hefði troðið korktappa í gatið. Færi tappinn hins vegar úr, dældi sjódælan öllum kælisjónum gegnum gírinn og niður í kjöl, í stað þess að dæla út fyrir borðstokkinn. Ég bölvaði sjálfum mér! Ég hafði ekki, í öllum asanum við að komast í land, tekið eftir því að enginn sjór kom út úr síðustykkinu. Heldur ekki tappanum á floti. Raunar var heppni að við höfðum ekki ausið honum fyrir borð. Að auki hafði ég sett vélina á fullt til að komast sem fyrst í land og með því aukið dælinguna um helming. Þvílík heimska! Við þurrjusum bátinn, settum tappann í og settum í gang aftur. Hvorugur okkar hafði taugar í áframhaldandi sjóferð svo við sigldum á hálfri ferð inn til Ísafjarðar aftur. Sem betur fer höfðu engar skemmdir orðið, utan þess að skipta þurfti um olíur og startara og rafal þurfti að taka upp og hreinsa. Síðan var smíðaður tappi sem ekki var hætta á að dytti úr þegar minnst varði. 

Það var erfitt að vera með nýstofnað heimili og nýtt barn og fjárhagurinn bar illa afborganir af bát sem ekkert kom inná og var í raun hreint leiktæki. Þar við bættist að við höfðum ákveðið að selja íbúðina okkar syðra og kaupa á Ísafirði. Þar sem ekkert gekk að selja leigðum við vestra. Eftir að sumrinu '82 lauk hafði ég búið inni á foreldrunum en frá fæðingu frumburðarins sumarið ´83 höfðum við, þegar þarna var komið sögu, búið í þremur leiguíbúðum, sú fyrsta var leið til skamms tíma, sú næsta var seld ofan af okkur og sú þriðja var á sölu. Við höfðum augastað á sannkölluðu draumahúsi, litlu rauðu timburhúsi úti í Krók, með útsýni út á Skutulsfjörðinn og Djúpið til Snæfjallastrandar, en gátum okkur hvergi hreyft því ekki seldist syðra. Haustið ´84 var trillan vetrarbúin og sett upp á kamb. Við þraukuðum veturinn í lélegu leiguhúsnæði. Undir vor, þegar ekkert hafði gerst í sölumálum syðra, tókum við stóra ákvörðun. Ísafjarðarkaupstaður, sem var vinnuveitandi konunnar, hafði ekkert viljað aðstoða okkur með leiguíbúð til lengri tíma, jafnvel þó skortur væri á fóstrum. Við ákváðum því að skoða atvinnuauglýsingar blaðanna og grípa fyrsta sveitarfélag sem auglýsti eftir fóstru og byði húsnæði, eða aðstoð við útvegun þess. Ekki þurfti að leita nema u.þ.b. tvær vikur. Fyrsti staður sem auglýsti á þennan veg var Neskaupstaður. Við hringdum, þeir vildu allt fyrir okkur gera. Ég hafði svo sem treyst mér til að vinna hvað sem væri, en félagsmálastjórinn þeirra, sem sá um ráðningar á leikskólann (Einar Már Sigurðsson,núv. alþ.m.) hringdi um hæl og hafði útvegað vinnu fyrir bifvélavirkjann á verkstæði Síldarvinnslunnar.

Við gengum frá ráðningum og byrjuðum að pakka búslóðinni. Í miðju verki hringdi síminn. Það var komið ágætt tilboð í íbúðina syðra. Nýlegur bíll uppí og afgangurinn staðgreiddur. Við seldum strax. Það varð hins vegar ekki aftur snúið með búferlaflutninginn, þar höfðu allir lausir endar verið hnýttir. Konan fór á undan suður til að skrifa undir sölu og jafnframt að selja uppítökubílinn.

Ég lauk pökkun, búslóðin komst fyrir í 10 feta gámi! Kannaðst við pilt frá Reykhólum sem mikinn áhuga hafði haft á trillunni, aðallega vegna vélarorkunnar. Hitti hann og bauð honum bátinn. Hann sló til og keypti. Ætlunin var að nota bátinn í drátt á þangböllum fyrir Þörungavinnsluna á Reykhólum. Vegna vélaraflsins var hann talinn tilvalinn til þess.

 

Ég afhenti bátinn, tók við greiðslu, fékk lánaðan lyftara og flutti gáminn niður á höfn. Skellti í lás á tómri íbúð, kvaddi fjölskylduna og steig uppí flugvél suður. Trilluna sá ég aldrei aftur.

 

 -------------------------------------------

 

Nokkrum árum síðar, þá löngu fluttur vestur aftur og búinn að kaupa litla draumahúsið í Króknum, gerði ég tilraun til að hafa upp á bátnum. Hringdi vestur að Reykhólum, í verkstæðismann sem mér þótti líklegur til að vita eitthvað. Ég kom ekki að tómum kofanum. Báturinn hafði skipt um eigendur vestra, og hann hafði aðstoðað nýjan eiganda við að taka vélina úr og setja aðra minni í staðinn. Hafði aldrei fengið vinnuna greidda, báturinn væri einhversstaðar í grenndinni og hann lofaði að athuga hvað hægt væri að gera í málinu. Rúmum mánuði síðar spurði ég andlát þessa greiðvikna manns. Þar með slitnaði sá þráður, og ég hætti leit.

 

Trillan fór sem áður segir í þangballadrátt fyrir Þörungavinnsluna á Reykhólum Það er svo kannski merkileg tilviljun að núna, þegar ég hef keypt - frá Reykhólum- þá trillu sem ég hef lofað konunni og sjálfum mér að verði sú síðasta, þá skuli hennar síðasta hlutverk vestra hafa verið - jú, einmitt -þangballadráttur fyrir Þörungavinnsluna.

 

ENDIR.

 


19.10.2015 08:25

Mánudagur nítjándi..


Í skjáhorninu á tölvunni minni stendur 19.10.2015. Það þýðir tvennt: Tíminn flýgur áfram og liðnir eru tíu dagar frá síðustu færslu.

Það sem helst bar við í erli annars tíðindalítilla daga var að hún Sulta týndist. Kannski man einhver eftir henni Sultu frá því í fyrrasumar, ef ekki vil ég benda á tengil úr Færeyjaferðinni  hér hægra megin á síðunni, merktan "K". Þar er Sulta kynnt til sögunnar. Hér syðra átti Sulta svo heima í Ástúninu í Kópavogi, á þriðju hæð í blokk og þegar köttur býr á þriðju hæð í blokk eru strokuleiðir ekki margar. Svo flutti hún í Hraunbæinn á dögunum, aftur í blokk en nú á fyrstu hæð. 

Það fór að bera á því - eins og von var á - þegar Sulta eltist að hún sýndi með vissu millibili áhuga á genadreifingu. Þetta ástand varði reglubundinn tíma en þegar ég sá Sultu síðast var hún með versta móti og falaði jafnvel félagsskap af hundinum Edilon Bassa, sem hún þó allajafna vill hafa lítil samskipti við - nema þá helst í formi áreitis. 

Svo mun það hafa gerst að söngtrippið Bergrós Halla fór til vinnu einn morgun snemma í síðustu viku og gleymdi opnum glugga á herbergi með opnar dyr. Það varð Sultu of mikil freisting, um leið og íbúðin varð mannlaus stökk hún út um gluggann og hvarf á vit ævintýranna.....

Þegar leið að dagslokum og strokið uppgötvaðist varð uppi fótur og fit enda hefur Sulta ekki séð heiminn nema gegnum gler allt frá því hún skreið, þá hnefastór, upp á millikassann undir ferðadrekanum norður í Hallbjarnarstaðakrók á Tjörnesi. (Færeyjaferðin "L") Hún veit því lítið um hvernig hlutirnir ganga fyrir sig í Hraunbænum. Sultu var ákaft leitað og lýst eftir henni á helstu kattasamfélagsmiðlum. Allt kom þó fyrir ekkert, enginn kannaðist við að hafa séð hana úti við og enginn finnandi gaf sig fram. Óljósar upplýsingar bárust um að til hennar hefði sést við Árbæjarskóla og leitinni var um hríð beint þangað en án árangurs. 

Að kvöldi laugardags bárust þær fréttir eftir krókaleiðum gegnum hið ómissandi og ómetanlega internet að fínleg kisa sem svaraði til lýsingar hefði skriðið inn um glugga og gert sig heimakomna í kjallaraíbúð blokkarinnar. Sá sem þar bjó hafði hins vegar enga hugmynd um að kattar væri saknað úr húsinu og setti gestinn því út aftur að morgni. Kattarhöldurum hafði sumsé láðst að lýsa eftir flótta"manninum" í nærumhverfinu - þ.e. blokkinni sjálfri!

Þar með var orðið nokkuð ljóst að Sulta væri ekki bara á lífi heldur hefði kannski aldrei farið langt frá húsinu. Nú var hver kimi vaktaður með þeim árangri að aðeins liðu örfáir klukkutímar frá því internetið skilaði sínum upplýsingum gegnum nýbökuðu mömmuna í Garðabænum til kattarhaldaranna í Hraunbænum til þess að Sulta fannst úti á bílastæði blokkarinnar - undir bíl og á kafi í ástandinu með sér miklu stærra fressi. Hún náðist þó inn á endanum og þar með var strokuævintýrinu lokið. Tíminn leiðir svo í ljós hvort hún flutti eitthvað með sér "í lestinni".

Að öðru leyti hefur vikan gengið sinn vanagang. Ég hafði ætlað mér að bóka eina góða helgi eða svo, í stéttarfélagshúsinu í Stykkishólmi síðar í þessum mánuði eða í byrjun þess næsta. Nú bregður hins vegar svo við að ásókn í húsið virðist hafa stóraukist síðan í fyrra og engin álitleg helgi er laus. Ég á pantaða nokkra daga eftir miðjan desember í félagsíbúð á Akureyri og hyggst þá njóta jólastemningarinnar í bænum, líkt og við EH gerðum í Vestmannaeyjum í fyrra og lesa má um HÉR, HÉR og HÉR.  Mér er slétt sama um hvort veðrið verður vitlaust eður ei, norður vil ek og skal þangað með öllum ráðum. Hvort ég kemst suður aftur er svo annað mál, enda skilst mér að Óskabarnið sé með ágætan rekstur á Akureyri og "mér er sama hvar ég ræ...."

Það verða því varla nema dagstúrar í Hólminn fram að jólum enda er svo sem nóg að gera við frítímann í Höfðaborg fyrir og eftir jól. Ég á t.d. eftir að endurbyggja gamlan Benz húsbíl, þið munið........

Af öðru segir færra. Rauða skellinaðran hefur verið rúin öllu rauðu og stendur nú berstrípuð undir ábreiðu í geymslunni sinni. Ég hef nefnilega ekkert verið að sýna á myndum ljóta dæld í bensíntanknum hægra megin, dæld sem mér skilst að hafi komið á sínum tíma í flutningum til landsins. Þessi dæld átti stóran þátt í því lága verði sem ég greiddi fyrir hjólið í sumar en nú á semsagt að lagfæra hana. Hér fyrir neðan birtist ein þeirra mynda sem sýna skemmdina:











 Rauðu hlutirnir hafa verið sendir til Sandgerðis þar sem margnefndur General Bolt-on ætlar að taka þá til meðhöndlunar í vetur. Hvað út úr því kemur verður gaman að sjá. Bláa bifhjólið hefur lítið bifast undanfarna daga enda nóg annað að gera en að fíflast í frítímanum. Ég má þó segja að útlit þess hafi tekið stakkaskiptum enda mátti svo sannarlega leggja á það hönd eftir langar útistöður uppi á Snæfellsnesi. Brúnir taumar undan boltum og skrúfum eru að mestu horfnir enda hafa brúnir boltar og skrúfur vikið fyrir ryðfríum.

Það er mánudagur og kvöldvakt þessa vikuna. Klukkan er að verða hálftíu og ekki seinna vænna að nýta daginn fram að vinnu.....

Flettingar í dag: 298
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 306
Gestir í gær: 25
Samtals flettingar: 65976
Samtals gestir: 16976
Tölur uppfærðar: 1.5.2024 04:40:57


Tenglar