Það er
fimmtándi dagur fimmta mánaðar fimmtánda árs aldarinnar. Raunar lifir stutt af
þessum degi og senn er hann allur. Því er ekki seinna vænna að stinga inn orði.
Á morgun er laugardagur og leiðin liggur enn í Hólminn. Meðferðis er allur
hjólabúnaður vagnsins undir Stakkanesinu og þegar degi lýkur er ætlunin að
vagninn verði tilbúinn til sjósetningar. Ekki verður þó skipið sjósett fyrr en
um næstu helgi, hvítasunnuna - og þá því aðeins að veður leyfi. Allt er háð
veðri......
Við Bassi
förum því snemma í háttinn - þ.e. ef miðnætti á föstudagskvöldi er snemmt. Við
erum allajafna árrisulir og það er ekki gott að leggja mjög syfjaður af stað í
Hólminn í fyrramálið. Þess vegna bjóðum við góða nótt.