Það hefur
enginn tími gefist undanfarið til að skrá ferð síðustu viku norður í land. Það
er bara þannig en ég bæti úr þegar ég kem heim aftur. Nú í fyrramálið
(laugardag 25.) legg ég nefnilega af stað "eldsnemma fyrir allar
aldir" norður og austur um land til Vopnafjarðar. Ég fer akandi en kem
fljúgandi sunnudagsmorguninn 26. frá Egilsstöðum. Ef vel viðrar og eitthvað
merkilegt ber fyrir augu þá verður það myndað.
Til stendur að ferja nýkeyptan bíl austur um, fyrir ungan mann sem er að fá ökuréttindi. Stoppið verður stutt eins og að ofan greinir, varla nema hálfur sólarhringur og svo af stað aftur - loftleiðis.
Þetta verður gaman, ef að líkum lætur.......