Á AIS-
kerfinu sé ég að Vestmannaeyjatogarinn Jón Vídalín var að leggjast að bryggju í heimahöfn fyrir nokkrum mínútum. Þá styttist í að félagi vélstjóri komi heim með sögur úr rallinu. Þeir á J.V. hafa nefnilega tekið þátt í Hafrórallinu undanfarnar vikur og mér skilst að sitthvað hafi gengið á. Þrátt fyrir slæma bilun í spili sem lagfærð var austur á Eskifirði, þá er seigt í þessum gömlu Japanstogurum........alveg lygilega seigt.
Í gærkvöldi komst ég yfir bunka af myndum frá árinu 1994, teknar við ýmis tækifæri. Þær eru misgóðar en inn á milli eru þónokkrar eigulegar sem ég hreinlega man ekki eftir að hafa tekið. Nú þarf að ræsa skannann.....
Ég er enn að kljást við "Sjö strauma siglinguna" sem minnst var á síðast. Þegar mér tekst að koma henni frá mér á mannsæmandi hátt mun hún birtast sem ein löng færsla og ætli menn að lesa alla ferðina með myndum í einu er eins gott að hafa nóg kaffi og meððí við hendina - svo er kort af Hvammsfjarðareyjum Breiðafjarðar eiginlega nauðsyn líka.
Hér við Höfðaborg er bjart, dálítið kalt og vindgjóla. Inni er hlýtt eins og venjulega.....
Gott í bili, lífið bíður.......