Gunnar Th.
Fjórða kerfið.....


31.12.2016 16:50

Hvert er farið............?



Myndin hér að ofan er, eins og sjá má, tekin á gamlársdag fyrir 22 árum. Síðan hefur allt það frosna vatn sem á myndinni sést, runnið til sjávar og nýtt komið í staðinn - aftur og aftur og aftur. Þannig verður það löngu eftir að við báðir, ég sem myndina tók og ólafsfirski tannlæknirinn sem fyrir situr, verðum horfnir. Sýnin yfir Önundarfjarðarfjöllin til suðvesturs á vonandi eftir að lifa margar kynslóðir enn....

...og nú er það svo gott sem búið, þetta yfirstandandi ár, tvöþúsundog sextán.  Mér finnst reyndar óskaplega stutt síðan það hófst. Getur verið að búið sé, svo lítið beri á, að stytta árin? Mér hefur fundist þetta nokkur undanfarin ár en hef ekki fundið neina áþreifanlega ástæðu. Kannski er eðlilegt að eftir því sem árin færast yfir mann sjálfan finnist manni þau líða hraðar. Ég er ekki viss, því ár hafa verið að færast yfir mig svo lengi sem ég man - eitt í einu.  Nú telja þau fimmtíuogníu og góðu hálfu betur. Ég verð sextugur eftir fimm mánuði!  Einhvern tíma seint á síðustu öld þegar ég var að reikna aldur minn fram í tímann fann ég það út að árið 2000 yrði ég 43 ára. Þá þýddi það nokkurn veginn ævilok. Samt hefur  mér tekist að skrimta sextán og hálft ár þar framyfir.

Þann 10. mars nk. hef ég búið hér í Höfðaborg  í fimm ár - framanaf einn, svo með Áróru minni um tíma en lengst af með syninum.  Hér hefur verið afskaplega gott að búa og ekki er sjáanleg framundan nein breyting á því, hvað sem öllum skipulags-verðlaunatillögum borgarstjórnar líður.  Húsin hér í kringum mig voru ekki sjáanleg á þeirri tillögu og eiga þá væntanlega að hverfa með tímanum.  Ég treysti því á annað efnahagshrun og að ekki verði hróflað við neinu í nágrenninu meðan mér hentar að búa hér. Líkurnar virðast allgóðar því mér sýnist hrunarkitektar vera á fullri siglingu í þá átt.




Þetta gamlárskvöld verður frábrugðið undanförnum að einu, veigamiklu leyti.  Frá gamlárskvöldi 2006 hef ég nefnilega lokað mig inni með hundinum mínum og reynt að veita honum öryggi í sprengjuregninu. Fyrsta gamlárskvöldið var ég með Mola minn. Hann varð ekki langlífur og á eftir honum kom Bassi. Gamlárskvöldin 2007-11 héldum við hvor öðrum selskap á Lyngbrekkunni í Kópavoginum meðan fjölskyldan sótti brennur og skaut upp dóti utandyra, en síðan höfum við verið tveir einir hér í Höfðaborg á gamlárskvöld eftir fjölskyldumatarboð úti í bæ. Síðasta gamlárskvöld var Bassi farinn að venjast nokkuð og var mun rólegri en áður. Ekki grunaði mig þá að það væri jafnframt síðasta gamlárskvöldið hans.  Bassi var svæfður svefninum langa þann 17. apríl í vor eftir að hafa orðið fyrir bíl og meiðst illa. Hann varð tíu og hálfs árs, fæddur þann 22. nóv. 2005. Hann var einstakur félagi og er enn saknað á hverjum degi...af fleirum en mér.






Fleiri góðir vinir hafa kvatt á árinu, án þess nöfn séu nefnd. Þeirra er ekki síður saknað - vinahópurinn hefur ekki verið stór en ákaflega góður og því er mikil eftirsjá að hverjum og einum.

Af skemmtilegri  viðburðum ársins stendur Færeyjaferð okkar Ásgeirs Jónssonar í júní, uppúr. Ég á enn eftir að skrifa þá ferðasögu alla en þykir hæfilegt að láta snjóa aðeins yfir viðburði, svo auðveldara verði að ljúga hlutina dálítið upp!




Þá ber hátt gríðarlega skemmtilegt ferðalag vestur til Ísafjarðar, þar sem haldið var upp á 150 ára kaupstaðarafmæli í júlí. Vestur fór ég á bláa hjólinu (sem getur allt) og fékk að hengja tjaldvagninn aftan í bíl vinafólks á sömu leið. Hátíðarhöldin fóru þó að mestu fyrir ofan garð og neðan því ég notaði tímann og landsþekkta ísfirska veðurblíðu til að heimsækja gamla staði utan alfaraleiða og slóða sem ekki voru öllum farartækjum færir. Að hátíð lokinni hjólaði ég suður aftur en tjaldvagninn fór sömu leið til baka með sömu vinum.





 Tveimur vikum seinna vorum ég og vagninn komnir til Akureyrar ásamt drjúgum hluta fjölskyldunnar, til rúmrar vikudvalar, sem endaði með Fiskideginum á Dalvík.  Þangað fór einnig bláa hjólið en var minna notað en til stóð.  Slóðarnir nyrðra eru þó enn á sínum stað og það kemur sumar eftir þetta....


Stórskipið Stakkanes var ekkert sjósett í sumar. Fyrir því voru fleiri en ein ástæða. Sumarið er stutt og mikið af því var skipulagt fyrirfram, þ.m.t.  þessir þrír viðburðir sem nefndir eru hér ofar. Ég seldi ferðabílinn haustið ´15 og átti þá aðeins eftir gamlan Benz sem þarfnaðist ástar og umhyggju. Fyrir slíkt var enginn tími og nú í haust var hann búinn undir að verða breytt í nagla í einhverri erlendri verksmiðju. Í stað hans kom annar stærri og öflugri, sem reyndar þarfnast einnig ástar og umhyggju.  Ég geri ekki ráð fyrir að þeir fjórir mánuðir sem ég hef til að veita honum hvorttveggja, endist svo líklega verður annað að duga. Ferðabílsleysið kom m.a. í veg fyrir að ég gæti nýtt Stakkanesið sem skyldi. Stórskipið stendur því enn á vagninum sínum uppi í Stykkishólmi, niðurnjörvað að því ég best veit. (nema einhvern hafi vantað spotta enn á ný).  Á þeirri dvöl eru þó fyrirhugaðar breytingar....

Stöðugleiki er nauðsynlegur, og því á ég ekki von á öðru en að eyða gamlárskvöldinu á sama hátt og áður, hér innandyra í Höfðaborg. Bassi minn heitinn verður þá með mér í minningunni, og betri félagsskapur fæst ekki.

Þeim sem lásu til enda óska ég gleðilegra áramóta og alls hins besta á nýju ári!

 

 

Flettingar í dag: 60
Gestir í dag: 11
Flettingar í gær: 159
Gestir í gær: 28
Samtals flettingar: 63410
Samtals gestir: 16505
Tölur uppfærðar: 19.4.2024 09:07:33


Tenglar