Gunnar Th.
Fjórða kerfið.....


24.04.2016 13:00

Willy´s


Ég man flesta hluti svona þokkalega. Ekki kannski allt og ekki kannski alltaf hárnákvæmt en svona þokkalega. Til dæmis man ég ekki nákvæmlega hvenær ég eignaðist jeppann hans Jóa frænda. Það gæti hafa verið árin 1975 eða ´6. Svo er ekki víst að það skipti nokkru einasta máli. 

Jói frændi bjó á Stakkanesi (er nokkuð kunnuglegt við það nafn?) með afa og ömmu og átti Willy´s árgerð ´46. Þetta var flottur jeppi, með fulningahúsi og fíneríi. 



Líklega var það svo um 1963 að Jói frændi ákvað að selja jeppann. Kaupandinn var Gunnar heitinn Kristjánsson, vélstjóri hjá Íshúsfélaginu. Gunnar átti jeppann lengi en seldi að lokum og muni ég rétt eignuðust Arnardalsbræður hann. Hvort einhverjir áttu þar á milli man ég ekki. Úti í Arnardal var sett hálftoppventlavél í jeppann og eins og títt var við þess háttar breytingar var sett upphækkun á húddið fyrir loftinntakið á vélinni. Einhvern tíma á lífsleið jeppans var húsinu líka breytt og það endurbætt. Við það hurfu fulningarnar og húsið varð slétt. Þegar ég eignaðist jeppann hafði hann ekki verið í notkun nokkurt skeið og þurfti talsverðra lagfæringa við. Ég naustaði bílinn í skúr niðri við Fjarðarstræti, sem Matthías heitinn Sveinsson verslunarmaður hafði átt og pabbi hafði aðgang að. Þar var unnið að lagfæringum og stöku sinnum skroppið út að aka á milli. Ég var þarna talsverðan tíma með bílinn en seldi hann að lokum Óla bróður Árna heitins Geirssonar símaverkstjóra. Árni bjó þá að Seljalandsvegi 30 á Ísafirði og ég man að Óli var með jeppann þar upp með húsinu meðan hann dundaði í honum. Svo hvarf Óli úr bænum, eignarhaldið á jeppanum fór á flakk og að lokum endaði hann í uppfyllingunni neðan við Vélsm. Þór hf.

Næst eignaðist ég Willy´s austur í Neskaupstað haustið 1985. Það er nýlega búið að rekja feril hans á Facebook og óþarfi að gera það aftur. Söguna má finna á FB-síðu um bíla á N-númerum. Hún var afar skrautleg, í raun miklu skrautlegri en þar kemur fram því af tillitssemi við hlutaðeigandi var nokkrum atriðum sleppt. Það ætti að vera nægilegt að líma þá frásögn inn. Hún ætti þá að birtast hér neðan við:



Ég lofaði Grímsa myndum af Búra, Willy´s jeppanum sem ég keypti af Rúnari Gunnars veturinn ´85-6. Þessi Willys var með stálhúsi og original Hurricane vél, skráður eins og Ísraelsjeppi (´53) en með ´55 útlit. Hann fékk að snúast alveg svakalega þann tíma sem ég átti hann en endaði loks ævina hjá Halldóri Gunnlaugs, stuttu eftir að ég flutti vestur aftur. Muni ég rétt beygði Halldór í honum stangir í Norðfjarðaránni. Hann var með þessum fallega (!) brúna lit þegar ég fékk hann en í kaffitíma á sólbjörtum degi utan við verkstæðið í Nesi máluðum við Bóas Bóasson hann heiðgulan. Við vorum fljótir að, helltum úr fötunni yfir húddið og drógum úr með stórum verkfærum úr Bátastöðinni. Á einni myndinni sést Bronco í baksýn. Ég átti hann líka og gerði hann upp fyrir austan. Bóas sprautaði hann svo fallega brúnsanseraðan með silfruðum og gylltum röndum. Þessi Bronco var á 32" dekkjum sem ég sendi til Gúmmívinnslunnar á Akureyri í sólningu. Eins og sést á einni myndinni hef ég "lánað" sjálfum mér þau undir Willysinn.


Vélin í Búra var léleg, rifin á einni sveif og það var orðin íþrótt þegar hann var farinn að banka leiðinlega mikið, að henda honum inn á lyftu í lok vinnudags, spæna pönnuna undan með loftlykli og olíunni í, smella nýrri legu í sætið og setja svo pönnuna undir aftur með loftlyklinum - og olíunni í! Lagerinn af legum var á brotajárnshaugunum úti undir kirkjugarði þar sem lágu nokkrar flathedda - Rússavélar. Einu sinni í leguhallæri var m.a.s. smellt gamalli legu úr Cressidu í sætið en þá þurfti að banka til festihakið.

Svo kom að því að legulagerinn kláraðist og af því ég var orðinn leiður á að vera stöðugt að skipta þá henti ég síðustu legunni sem festist, úr vélinni, ákvað að hafa stöngina legulausa og sjá hvað hún gæti enst þannig. Hljóðin voru ólýsanleg enda hvegi slegið af og endingin varð tíu dagar. Þá bókstaflega sprakk vélin þegar ég var á fullri ferð inn á BP-sjoppu til Benna að ná mér í hádegismat. Hún hrundi rétt við planið og ég var svo vitlaus að láta Búra renna yfir allt planið og inn fyrir húsið. Þegar ég kom út úr bílnum var breið olíurönd yfir endilangt planið og Benni ekki glaður. Ég mátti kaupa brúsa af olíuhreinsi í stað hádegismatar og hreinsa upp eftir mig. Við hreinsunina fann ég stimpilboltann strípaðan úti á götu. Þá svona datt mér í hug að nú væri frekar mikið bilað.......

Leifi í Skálateigi var að skipta um vél í Sjappa sem hann átti (frambyggðum FC-150) og setja í hann Benz dísil. Ég fékk gömlu vélina hjá honum og skipti næsta laugardag úti á verkstæði. Sú vél var aldrei jafn skemmtileg, einhverra hluta vegna en eðlilega mun hljóðlátari....

Þegar voraði ´86 var Búri oftar húslaus en hitt. Þeir voru reyndar farnir að tala um að borga mér fyrir að hafa húsið á því í hvert sinn sem það var tekið af virtist koma rigningardemba. Ég var hins vegar búinn að komast að því að Búri var frekar valtur með húsinu og ef það var ekki á gat ég tekið kröppu beygjuna innan við Kaupfélagið á Bökkunum og niður í Nesgötuna ( ofan við Gumma Skúla) á miklu meiri ferð. Það má kannski taka fram að veltigrind var aldrei sett í Búra - hún var lengi á teikniborðinu en fór aldrei lengra.

Eins og stundum er sagt: Búri er horfinn en minningin lifir.....


Fljótlega eftir að við fluttumst aftur frá Neskaupstað til Ísafjarðar vantaði okkur farartæki sem gæti dregið kerru. því við hugðum á miklar framkvæmdir við litla húsið okkar í Króknum. Inni í Essóporti stóð gamall ´46 Willy´s sem Biggi frændi (Biggi Þorsteins) átti. Einum tíu árum áður hafði ég hjálpað Bigga að koma þessum jeppa á götuna inni á Hafrafelli. Biggi hafði keypt hann þar, en jeppinn var samtíningur úr nokkrum þó uppistaðan ætti að heita gamli Tungujeppinn. Mig minnir að Dóri Ebba hafi átt gamla Tungujeppann og lent í óhappi á honum á Óshlíðinni. Þessi var semsagt hálfsmíðaður inni á Hafrafelli og við Biggi eyddum löngum stundum i að gera hann ökufæran. Það tókst og Biggi notaði jeppann sem vinnubíl árum saman. Þegar þarna var komið sögu var Biggi hins vegar búinn að uppfæra í Jeepster og sá gamli lá inni í olíuportinu. Einhverjir gemlingar höfðu sér til dundurs mölvað í honum flestar rúður og hleypt úr dekkjum svo útlitið var ekki bjart fyrir öldunginn. Ég fékk augastað á jeppanum, ekki síst sögunnar vegna. Biggi vildi hins vegar ekkert hafa með málið að gera og sagði mér að semja við Lóu. Það voru erfiðir samningar en allt gekk þó að lokum og ég kom jeppanum niður í Vélsm. Þór eftir að hafa eytt heilu kvöldi í að dæla í dekkin með pínulítilli rafmagnsloftpressu. 

Á bílaverkstæðinu í Þór gekk Willy´s í endurnýjun lífdaga og meðfram lagfæringunum smíðaði ég kerru aftan í hann. Kerran var svo sirka eitt ár á dráttarkúlunni og kvikindislega þenkjandi félagar voru farnir að spyrja hvort bíll og kerra væru heilsmíðuð! 






Það var mikið flutt á þessum bíl og sem dæmi má nefna að þegar við fengum Einar á Kolfinnustöðum til að grafa húsið í Króknum upp að ofan- og innanverðu var allur uppmoksturinn settur á skurðbakkann. Efnið reyndist svo ónothæft aftur og við handmokuðum uppá þrjátíu og átta kerrur af mold, ókum niður á ruslahauga og losuðum þessar þrjátíu og átta kerrur með handafli til stækkunar bæjarlandsins. Til að fylla í skurðinn meðfram húsinu sóttum við tuttugu og fimm kerrur af fjörugrjóti í fjöruna beint niður af húsinu og ég fullyrði að lengi vel var ekki að finna stærri steina en hálfan hnefa frá ræsisrörinu út að Baldri Jóns! Þessi framkvæmd fór ekki í umhverfismat og það má meta það við nágrannana í Fjarðarstræti 57-9 að þeir hvöttu frekar en löttu þótt sumir hafi kannski lagt kollhúfur yfir landeyðingunni. Sjórinn sá svo um að skila nýju efni á land í stað þess sem tekið var.

Þegar við höfðum ekki lengur not fyrir jeppann var hann seldur og ég hef fyrir satt að hvíti, opni hálfjeppinn sem lengi var inni á flugvelli og Ernir notuðu sem dráttarklár hafi að uppistöðu verið þessi jeppi.

Síðan hef ég ekki átt Willy´s....

Þar til nú:



...og líkt og maðurinn sagði: 

"Að eiga Willy´s er góð skemmtun"

Flettingar í dag: 55
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 56
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 59142
Samtals gestir: 15662
Tölur uppfærðar: 28.3.2024 15:03:16


Tenglar